Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á rannsóknarleyfi fyrir Björgun Sement ehf. vegna rannsókna í Kollafirði

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Björgun Sement ehf. leyfi til leitar og rannsókna á lausum jarðefnum á hafsbotni í Kollafirði í samræmi við lög nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins. Afmörkun rannsóknarsvæða má finna í leyfinu hér að neðan.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu leyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 73/1990, um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800