Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Mosveitum leyfi til rannsókna á grunnvatni við Fossvallaklif, í sveitarfélaginu Mosfellsbæ, í samræmi við 4. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Afmörkun nýtingarsvæðisins má finna í leyfinu hér að neðan.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu leyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 2. mgr. 33. gr. auðlindalaga og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Tengd skjöl (sjá viðhengi).





