Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkuveitu Reykjavíkur, kt. 551298-3029, leyfi til rannsókna vegna áætlunar um vatnsaflsvirkjun í Rangá í Fellum, í sveitarfélaginu Múlaþingi, í samræmi við 4. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998, sbr. 40. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Afmörkun rannsóknarsvæðisins má finna í leyfinu hér að neðan.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu rannsóknarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 2. mgr. 33. gr. auðlindalaga og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





