Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á rannsóknarleyfi fyrir Afl og Orku ehf. vegna áætlunar um vatnsaflsvirkjun í Þverá í Bjarnarfirði

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Afli og Orku ehf., kt. 520624-0580, leyfi til rannsókna vegna áætlunar um vatnsaflsvirkjun í Þverá í Bjarnarfirði í sveitarfélaginu Kaldrananeshreppi, í samræmi við 4. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998, sbr. 40. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Virkjunarkosturinn er kallaður Svansvirkjun. Afmörkun rannsóknarsvæðisins má finna í leyfinu hér að neðan.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu rannsóknarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 2. mgr. 33. gr. auðlindalaga og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800