Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Guðlaug H. Kristmundsson að Lækjarbotnum, fyrir landeldi á bleikjum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 25. nóvember til og með 23. desember sl. og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.
Aftast í starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem farið er yfir málsmeðferðina, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





