Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Kaldvík hf. í Seyðisfirði, Múlaþingi. Um er að ræða eldi á laxfiskum í sjókvíum með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af að hámarki 6.500 tonn af frjóum laxi.
Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 12. desember 2024 til 20. janúar 2025 og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Athugasemdir bárust frá 17 aðilum á auglýsingatíma og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð. Athugasemdirnar má einnig nálgast í hlekk hér fyrir neðan.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018, þar sem tekin er afstaða til niðurstöðu umhverfismats og fjallað er um athugasemdir.
Við gildistöku starfsleyfisins falla úr gildi áður útgefin leyfi Kaldvíkur hf. við Háubakka og Sörlastaðavík í Seyðisfirði, útgefin 7. nóvember 2012 og markaður gildistími til 7. nóvember 2026.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





