Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Nesbúegg ehf. að Vatnsleysuströnd, 190 Vogum. Starfsleyfið heimilar rekstraraðila að reka eggjabú með stæði fyrir allt að 65.000 varp- og unghænur.
Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á á tímabilinu 20. mars 2026 til og með 20. apríl 2026 og hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.





