Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á starfsleyfi fyrir Sláturfélag Suðurlands svf. að Fossnesi

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Sláturfélag Suðurlands svf. að Fossnesi, 800 Selfossi. Starfsleyfið heimilar starfsemi sláturhúss með framleiðslugetu allt að 66 tonnum af skrokkum á dag en einnig brennslu á allt að 260 tonnum af sláturúrgangi á ári, að hámarki 3 tonn/sólarhring.

Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á á tímabilinu 13. mars 2026 til og með 13. apríl 2026 og hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800