Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á starfsleyfi Landsvirkjunar fyrir Vaðölduver

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi til Landsvirkjunar fyrir vindorkuver við Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Starfsleyfið tekur til reksturs á allt að 28 vindmyllum með samanlagt uppsett afl allt að 120MW, auk safnstöðvar og tengdrar starfsemi.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 26. júní til og með 26. júlí 2026 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800