Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Matorku ehf. að Húsatóftum vestan Grindavíkur. Starfsleyfið heimilar landeldi á laxfiskum með allt að 200 tonna hámarkslífmassa ásamt fiskvinnslu með allt að 30 tonna framleiðslugetu á dag.
Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á tímabilinu 11. maí 2026 til og með 10. júní 2026 og hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Ein athugasemd barst á auglýsingatíma frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





