Til baka

11. apríl 2025

Útgáfa á starfsleyfi Steinullar hf., Sauðárkróki.

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir steinullarverksmiðju Steinullar hf., Sauðárkróki. Rekstraraðili hefur heimild til að framleiða allt að 2.500 kg á klukkustund af steinull og steinullarafurðum auk heimildar til að jarðgera allt að 1.000 tonn af moltu á ári.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 11. mars til og með 8. apríl 2025 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugsemdir bárust við auglýsta tillögu.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl

Starfsleyfi – Steinull hf., Sauðárkróki.

Við erum á samfélagsmiðlum

Facebook merki

Umhverfis- og orkustofnun

Rangárvellir 2, hús 8

603 Akureyri

Suðurlandsbraut 24

108 Reykjavík

Hafa samband

Netfang: uos@uos.is

Sími: 569 6000

Opið fyrir símtöl milli kl. 8:30 og 15 alla virka daga

Kennitala: 700924-1650