Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Nánar um rafbílastyrki

Nýjar reglur um styrki til kaupa á hreinorkubílum taka gildi 1. nóvember 2026

Styrkupphæð - 2026

Nýskráðir á Íslandi

Til styrkhæfra ökutækja teljast ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi.

1. janúar 2026 breyttust hreinorkustyrkir til fólksbíla úr 900.000 kr. í 500.000 kr. (1. nóvember 2026 verða hreinorkustyrkir til fólksbíla 400.000 kr.).

Umsóknir sem verða samþykktar 1. nóvember 2026 eða síðar fá að hámarki 400.000 kr. jafnvel þótt ökutækið hafi verið keypt eða nýskráð fyrir þann tíma.

Sama á við um verðþakið. Fólksbílar sem kosta meira en 8 milljónir króna eru ekki styrkhæfir ef umsókn er samþykkt 1. nóvember 2026 eða síðar.

Til að sækja um styrk þarf ökutæki að vera nýskráð hjá Samgöngustofu og aðeins skráður eigandi getur sótt um.

Sækja þarf um rafbílastyrk innan 12 mánaða frá nýskráningu á Íslandi.

Fyrst skráðir erlendis (innfluttir notaðir bílar)

Ökutæki sem hafa verið fyrst skráð erlendis, en eru nýskráð á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis eiga rétt á 400.000 kr. styrk (1. nóvember 2026 lækkar styrkurinn í 320.000 kr.).

Ökutæki sem eru nýskráð hér á landi meira en 12 mánuðum eftir fyrstu skráningu erlendis eru ekki styrkhæf.

Hvernig sæki ég um?

Þú ferð á inn á Island.is, skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og gengur frá umsókn með auðveldum hætti.  Styrkur greiðist á bankareikning kaupanda bifreiðarinnar.

Styrkhæfi ökutækja
Hvernig ökutæki?
  • Rafmagnsbílar sem eru 100% knúnir rafmagni
  • Vetnisbílar með efnarafal
Hvaða flokkar ökutækja?
  • Fólksbílar sem taka að hámarki 8 farþega (flokkur M1)
  • Sendibílar að hámarki 3,5 tonn að þyngd (flokkur N1)
Önnur skilyrði
  • Umsókn þarf að berast innan 12 mánaða frá nýskráningardegi ökutækis
  • Kosta minna en 10 milljónir (8 milljónir frá og með 1. nóvember 2026)

Réttlát umskipti

Með þessari framkvæmd hefur stjórn Loftslags- og orkusjóðs haft að leiðarljósi að mæta hugmyndafræði um réttlát umskipti með því að veita styrki óháð kaupverði. Þannig fá ódýrustu bílarnir hlutfallslega hæstu styrkina og einnig er sett þak á kaupverð. Enn fremur hefur verið tekið tilliti til þeirra er vilja kaupa innflutt notuð ökutæki og til ökutækja sem eru sérútbúin fyrir fólk með fötlun.

Reglur og skilmálar

Um styrkveitingar til kaupa á ökutækjum er ganga fyrir hreinni orku

+

Spurt og svarað

Nýjar reglur um styrki til kaupa á hreinorkubílum taka gildi 1. nóvember 2026

+

Fyrst skráðir erlendis (innfluttir notaðir bílar)

+

Hvar sæki ég um styrk?

+

Hvernig sæki ég um?

+

Hvað ef enginn bankareikningur er skráður á Ísland.is?

+

Hvenær er styrkurinn greiddur út?

+

Fá eldri bílar styrk?

+

Eru notaðir bílar styrktir?

+

Er hægt að sækja um fleiri en einn bíl? Ef já, hversu marga?

+

Hvað með aðra bílaflokka eins og stærri sendibíla, stærri pallbíla, vörubíla, hópferðabíla og fleira?

+

Er styrkurinn fyrir alla, einstaklinga og fyrirtæki?

+

Ef ég endurnýja bílinn árlega, fæ ég alltaf styrk?

+

Get ég framvísað styrknum til dæmis til bílasala?

+

Eru einhverjar þyngdar- eða stærðartakmarkanir á bílunum?

+

Er hámarksverðið miðað við bíl með aukahlutum?

+

Ef bíllinn er sérútbúinn fyrir fatlaða og kostar meira en hámarkið, fæst þá enginn styrkur?

+

Má selja bílinn úr landi?

+

Af hverju eru metanbílar ekki styrktir?

+

Fæ ég styrk fyrir vetnisbíl?

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800