Lagaumgjörð og regluverk

Raforkueftirlitinu er falið víðtækt umsjónarhlutverk í raforkumálum og þar á meðal eftirlit með flutningi og dreifingu raforku

Umsjónarhlutverki Raforkueftirlitsins samkvæmt raforkulögum má skipta í eftirtalda þætti:

  • Almennt eftirlit með framkvæmd raforkulaga
  • Eftirlit með aðskilnaði rekstrarþátta í bókhaldi flutningsfyrirtækis og dreifiveitna
  • Setning tekjumarka
  • Eftirlit með gjaldskrám fyrir flutning og dreifingu raforku
  • Eftirlit með afhendingargæðum raforku
  • Sinna ábendingum notenda sem telja að raforkufyrirtækin hafi brotið á sér

Þegar ágreiningur kemur upp

Hver sá sem telur raforkufyrirtæki brjóta á rétti sínum með ákvörðunum, framkvæmdum eða athafnaleysi getur borið málið undir Umhverfis- og orkustofnun.

Að undangengnum lögmæltum undirbúningi og rannsókn máls tekur stofnunin stjórnvaldsákvörðun um hvort sú starfsemi fyrirtækis, sem málið lýtur að, sé í samræmi við lög. Ef starfsemin er ekki í samræmi við heimildir raforkulaga getur Umhverfis- og orkustofnun krafist þess að úr verði bætt að viðlögðum dagsektum.

Stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar í raforkumálum eru kæranlegar til úrskurðarnefndar raforkumála.

Senda fyrirspurn

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800