Hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar
Hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar samkvæmt efnalögum eru meðal annars:
Stjórnsýsla
- Vinna við innleiðingu EES-löggjafar um efni, efnablöndur og hluti sem innihalda efni, svo sem að greina gerðir um efnamál áður en þær eru innleiddar hér á landi, skrifa drög að reglugerðum og kynna ákvæði þeirra fyrir haghöfum.
- Gagnaskil til ESB og alþjóðlegra stofnana um framkvæmd reglugerða og alþjóðlegra samninga.
Gerð eftirlitsáætlunar og framkvæmd eftirlits
- Eftirlit með efnum, efnablöndum og hlutum sem innihalda efni
- Taka við ábendingum um ólöglega vöru og bregðast við
Útgáfa leyfa
- Markaðsleyfi fyrir plöntuverndar- og sæfivörum
- Notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum og útrýmingarefnum
- Staðfesting markaðsleyfa Efnastofnunar Evrópu
Upplýsingagjöf
- Til annarra stjórnvalda um hlutverk þeirra samkvæmt efnalögum
- Til iðnaðarins í gegnum þjónustuborð um efnamál (Helpdesk), kynningarfundi og kynningu í fyrirtækjum
- Til almennings
- Kennsla á námskeiðum sem tengjast lögum og reglum um efnavörur
Þátttaka í norrænu og evrópsku samstarfi
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





