Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Mengaður jarðvegur

Eftirlit með menguðum jarðvegi er að stórum hluta í höndum heilbrigðiseftirlita landsins.

Umhverfis- og orkustofnun fer með eftirlit með menguðum jarðvegi sem rekja má til starfsemi með starfsleyfi frá stofnuninni

Kort yfir mengaðan jarðveg

Umhverfis- og orkustofnun heldur skrá yfir svæði þar sem er mengaður jarðvegur eða grunur um mengun.

Opna kortasjá

Ferli

Þegar heilbrigðisnefnd eða Umhverfis- og orkustofnun (þegar um er að ræða starfsemi undir eftirliti hennar) fær tilkynningu um mögulega mengaðan jarðveg, þarf að framkvæma frummat eins fljótt og hægt er.

Ef frummat bendir til þess að um umtalsverða mengun á jarðvegi sé að ræða skulu rekstraraðilar atvinnurekstrar leggja fram áhættugreiningu. Ef niðurstaða áhættugreiningar er að hreinsa þurfi svæði skal rekstraraðili atvinnurekstrar leggja fram, sem hluta af áhættugreiningunni, tímasetta áætlun um hvernig staðið verði að hreinsuninni og meðhöndlun þess mengaða jarðvegs sem grafinn verður upp. Almennt skal miða við að svæði sé hreinsað með þeim hætti að það komist til fyrra ástands.

Slökkviliðsstjóri fer með stjórn á vettvangi við mengunaróhöpp og á meðan hætta á bráðamengun varir. Heilbrigðisnefnd og í vissum tilfellum Umhverfis- og orkustofnun tekur við stjórn aðgerða þegar hætta á bráðamengun varir ekki lengur.

Hefur þú grun um mengaðan jarðveg?

Ef þig grunar að jarðvegur geti verið mengaður hvetjum við þig til að senda okkur ábendingu.

Athugið að almenningur sér ekki nöfn þeirra sem hafa sent inn ábendingar. Nöfnin hjálpa okkur við úrvinnslu og eftirfylgni, en einnig er hægt að senda ábendinguna nafnlaust.

Hvernig ábendingum er leitað eftir? 

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir öllum ábendingum um það hvar mengun gæti leynst. Dæmi um slík svæði:

  • Olía hefur lekið í jörð
  • Olía hefur verið grafin í jörð
  • Urðunarstaðir
  • Úrgangur hefur verið brenndur eða grafinn
  • Gamlar bensínstöðvar
  • Gamlar smurstöðvar
  • Brennur
  • Geymslur hættulegra efna þar sem líkur eru til að hættuleg efni hafi lekið út
  • Riðugrafir
  • Miltisbrandsgrafir
  • Skotvellir
  • Gamlar spennustöðvar
  • Viðhald og niðurrif skipa 

Af hverju er mikilvægt að skrá upplýsingar um mengaðan jarðveg?

Upplýsingar um mengaðan jarðveg eru gríðarlega mikilvægar fyrir komandi kynslóðir. 

Upplýsingarnar nýtast við skipulagsvinnu. Til dæmis til að koma í veg fyrir að skipulögð sé viðkvæm byggð á svæði þar sem hætta er á heilsuspillandi mengun. 

Það er því mikilvægt er að skrá eins mikið af upplýsingum um mengaðan jarðveg og hægt er áður en þær glatast.

Hvað verður um ábendingarnar?

  • Þegar ábending er send inn er hún tekin til fyrstu skoðunar hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Ábendingin er svo send til heilbrigðiseftirlits á viðkomandi svæði. Ef ábendingin er um áður óþekkt mengað svæði stofnar heilbrigðiseftirlitið mál um ábendinguna. Þá birtist punktur á kortinu. Ef ábendingin varðar mál sem þegar hefur verið tilkynnt á bætast upplýsingarnar inn í sögu málsins. 
  • Heilbrigðiseftirlitið mun í framhaldinu framkvæma frummat á svæðinu og flokka það eftir áhættu.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800