Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Atvinnulíf

Efnamál, eftirlit, mengandi starfsemi, starfsleyfi, umsagnir og úrgangsmál.

Athugið að hluti af efninu er hýstur á ust.is, vefsíðu forvera Umhverfis- og orkustofnunar.

Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsleyfi og hefur eftirlit með mengandi starfsemi, fer með efnamál og veitir umsagnir um mat á umhverfisáhrifum og skipulagstillögur. Hér finna fyrirtæki upplýsingar um leyfi, skráningu, eftirlit og skyldur sínar.

Stofnunin gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi sem fellur undir viðauka I og II við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, til dæmis stóriðju, fiskeldi, urðunarstaði og olíubirgðastöðvar. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga gefa út starfsleyfi fyrir aðra starfsleyfisskylda starfsemi og sum starfsemi er þess í stað skráningarskyld.

Í efnamálum hefur stofnunin eftirlit með markaðssetningu efna og efnavara, svo sem merkingum, öryggisblöðum, snyrtivörum, plöntuverndarvörum og sæfivörum.

Starfsleyfi, fyrirmæli og eftirlit

Starfsleyfi er skrifleg heimild til að starfrækja tiltekinn atvinnurekstur. Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi sem fellur undir viðauka I og II við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir og hefur eftirlit með henni.

Skoða yfirlit
Kort af Íslandi sem sýnir starfsstöðvar með starfsleyfi frá Umhverfis- og orkustofnun

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800