Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp, kt. 540602-4410, til að hefja brennslu á allt að 499 tonnum af dýrahræjum á ári í brennsluofni í Árnesi.
Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst á tímabilinu 3. nóvember til og með 6. nóvember 2026. Athugasemd barst við auglýst áform og er gerð grein fyrir henni í greinargerð.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





