Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Móttaka umsóknar Háskóla Íslands um leyfi fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera

Umhverfis- og orkustofnun hefur borist umsókn frá Háskóla Íslands um leyfi til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra örvera, í rannsóknarhúsnæði Háskóla Íslands, starfsstöð í Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík.

Starfsemin sem hér um ræðir fellur undir lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerð nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera. Umræddar örverur falla undir afmörkunarflokk 1 sem felur í sér minnstu mögulega áhættu fyrir fólk og umhverfi. Vinnueftirlitinu hefur verið tilkynnt um umsóknina.

Umhverfis- og orkustofnun mun auglýsa ákvörðun sína um útgáfu leyfis síðar.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800