Hollustuhættir
Markmið laga um hollustuhætti er að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi, auk þess að koma í veg fyrir eða að draga úr losun út í andrúmsloft, vatn og jarðveg og koma í veg fyrir myndun úrgangs í því skyni að vernda umhverfið.
Markmið reglugerðar um hollustuhætti er að tryggja öruggt nærumhverfi og forvarnir, með áherslu á að vernda og viðhalda lýðheilsu og heilnæmum lífsskilyrðum viðkvæmra hópa og almennings.
Heilbrigðisnefndir bera ábyrgð á heilbrigðiseftirliti og framkvæmd þess samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar um hollustuhætti. Umhverfis- og orkustofnun samræmir heilbrigðiseftirlit, þannig að framkvæmdin sé með sama hætti á landinu öllu.
Námskeið vegna húðrofs
Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsskilyrði fyrir rekstur húðflúrstofa og stofa þar sem fram fer húðgötun, húðrof og fegrunarflúr. Stofnunin heldur námskeið í sóttvörnum, sem eru skylda fyrir alla þá sem starfa við húðrof og hafa ekki lokið námi á heilbrigðissviði sem felur í sér fræðslu um smitgát og sóttvarnir.


Húsnæði
Inniloft, raki, mygla og hermannaveiki

Hávaði og hljóðvist
Hávaðakort, aðgerðaráætlanir og leiðbeiningar um hljóðvistarkröfur

Húðrof
Námskeið og starfsskilyrði fyrir húðflúrun, húðgötun, húðrof og fegrunarflúr

Leiksvæði og öryggi
Upplýsingar og reglur um aðbúnað á leiksvæðum til að tryggja öryggt umhverfi fyrir börnin okkar

Baðstaðir í náttúrunni
Flokkun baðstaða auk mælinga og mats á heilnæmi og gæði baðvatns

Sundstaðir
Handbók, heilnæmi baðvatns, hæfnispróf og öryggi á sundstöðum

Gervigrasvellir og gúmmikurl
Tilmæla stofnunarinnar um dekkjakurl sem fylliefni á gervigrasvöllum
Óhappa- og slysaskráning
Skráningarblöð fyrir óhöpp í skólum, íþróttahúsum, sundlaugum og á öðrum stöðum.

Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





