Sundstaðir
Hér eru upplýsingar fyrir rekstraraðila og starfsfólk sund- og baðstaða um handbækur, áhættumat, öryggisbúnað, hæfnispróf starfsmanna og heilnæmi baðvatns. Um sund- og baðstaði gildir reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum með síðari breytingum.
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur eftirlit með sund- og baðstöðum.
Handbók um sund- og baðstaði
Handbók fyrir sund- og baðstaði er gefin út með hliðsjón af reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum nr. 814/2010 með síðari breytingum. Handbókin er unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Handbókinni er ætlað að skýra einstakar greinar reglugerðarinnar og einnig að leiðbeina um það sem ekki kemur fram í reglugerðinni en tengist henni á annan hátt. Handbókinni er ætlað að nýtast stjórnendum og starfsfólki sund- og baðstaða, eftirlitsaðilum, hönnuðum og þeim sem selja búnað fyrir sund- og setlaugar. Í viðauka við handbókina er að finna lista yfir öryggisbúnað sund- og baðstaða og drög að rekstrardagbók vegna mælinga og viðhalds, dagbók sundlauga vegna viðhalds og mælinga og hreinlætisáætlun á sund- og baðstöðum.
Öryggishandbók og áhættumat
Öryggishandbók um sund- og baðstaði fjallar um öryggisatriði sem skipta máli í daglegum rekstri sund- og baðstaða og hvernig fylgja má eftir lögum og reglum sem um staðina gilda á einfaldan hátt. Áhættumat skal liggja fyrir á öllum sund- og baðstöðum og leiðbeinir öryggishandbókin um gerð þess. Höfundur öryggishandbókarinnar er Herdís Storgaard. Útgáfan er rafræn og víða í henni eru tenglar á ítarefni. Öryggishandbókin er fyrir þá sund- og baðstaði sem reglugerð nr. 814/2010 gildir um.
Gerð áhættumats á sund- og baðstöðum
Öryggishandbókin er leiðbeinandi rit við gerð áhættumats á sund- og baðstöðum. Mælst er til þess að notaður sé gátlisti um gerð áhættumats, sem er í fylgiskjali 3 með öryggishandbókinni, og eyðublað um skráningu og aðgerðaáætlun við framkvæmd og úrvinnslu matsins. Í sex skrefum má framkvæma áhættumat, skrá niðurstöður, setja fram áætlun um hvað þarf að gera og að lokum gera samantekt matsins.
Öryggisbúnaður
Listi þessi er byggður á mati skyndihjálpar- og endurlífgunarráðs Rauða krossins frá árinu 2012.
- Súrefnistæki með stillanlegu flæði (1 til 15 lítrar) sem tengja má við blástursmaska. Ef langt er í aðstoð getur þurft auka 5 lítra súrefniskút.
- Kokrennur, 5 til 6 stærðir.
- Blástursmaski.
- Einnota blástursplast, hluti af persónulegum búnaði hvers starfsmanns.
- Öndunarbelgur, til afnota fyrir faglærða aðila á staðnum.
- Hjartastuðtæki ásamt nauðsynlegum fylgihlutum.
- Einfalt handsog, fyrir faglærða á staðnum.
- Björgunarsveigur er nauðsynlegur í öllum laugum, sama hversu djúpar þær eru.
- Flotbakbretti með minnst þremur ólum eða frönskum rennilás sem ekki límast saman í vatni. Höfuðpúðar á brettið eru nauðsynlegir.
- Kragar, stífir og stillanlegir fyrir alla aldurshópa.
- Teppi.
- Samspelkur, 2 stykki.
Hæfnispróf starfsmanna
Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu árlega standast hæfnispróf samkvæmt III. viðauka reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur skulu standast hæfnisprófið á tveggja ára fresti og sundkennarar sem lokið hafa íþróttafræðinámi á háskólastigi og hafa leyfisbréf til kennslu á þriggja ára fresti, sjá töflu.
Tíðni hæfnisprófs
| Hópur | Tíðni hæfnisprófs |
|---|---|
| Starfsmenn sem sinna laugargæslu | Einu sinni á ári |
| Sundkennarar (ekki með háskólapróf), sundþjálfarar og leiðbeinendur | Á tveggja ára fresti |
| Sundkennarar sem lokið hafa íþróttafræðinámi á háskólastigi eða jafngildu eldra prófi og hafa leyfisbréf til kennslu samkvæmt lögum nr. 87/2008 eftir 15. febrúar 2014 | Á þriggja ára fresti |
| Sundkennarar sem lokið hafa íþróttafræðinámi á háskólastigi eða jafngildu eldra prófi og hafa leyfisbréf til kennslu samkvæmt lögum nr. 87/2008 fyrir 15. febrúar 2014 | Bóklegt endurmenntunarnámskeið einu sinni á ári, þar sem námsefnið er samkvæmt III. viðauka, eða hæfnispróf samkvæmt III. viðauka á þriggja ára fresti |
Leiðbeinendur með gild réttindi til að leiðbeina í skyndihjálp og björgun skulu annast hæfnispróf samkvæmt III. viðauka. Slík réttindi öðlast þeir sem hafa lokið leiðbeinendanámskeiði í skyndihjálp og tveggja daga leiðbeinendanámskeiði í björgun. Til að viðhalda réttindum sínum skal leiðbeinandi sækja endurmenntun fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp og björgun á þriggja ára fresti. Heimilt er að leiðbeinendur leiti til íþróttakennara til að framkvæma prófatriði 1–3 í hæfnisprófi samkvæmt III. viðauka.
Að loknu námskeiði í sérhæfðri skyndihjálp fyrir sund- og baðstaði og hæfnisprófum samkvæmt III. viðauka, skulu leiðbeinendur senda lista yfir þátttakendur sem hafa lokið sérhæfðu skyndihjálparnámskeiði fyrir sund- og baðstaði og þá er hafa staðist hæfnispróf samkvæmt III. viðauka, til viðkomandi heilbrigðiseftirlitssvæðis og til viðkomandi rekstraraðila sundstaðar þar sem starfsmaðurinn starfar.
Listi frá leiðbeinendum um þá sem staðist hafa hæfnispróf samkvæmt III. viðauka og starfa á sund- og baðstað, skal vera starfsmönnum heilbrigðiseftirlits aðgengilegur við eftirlit.
Prófatriði hæfnisprófs
- Þolsund, 600 m á innan við 21 mínútu (frjáls aðferð).
- Hraðsund, 25 m á 30 sekúndum
- Kafsund, 15 m.
- Björgunarsund í síðbuxum og síðerma peysu, 25 m með jafningja.
- Björgun á óvirkum jafningja með björgunarsveig eða öðrum flotáhöldum, úr miðri laug að hliðarbakka, lyfta viðkomandi upp á bakka með aðstoð eins laugarvarðar.
- Sækja 3 hluti í dýpsta hluta laugar (á allt að 3,5 m dýpi). Synda 5 m á yfirborði, kafa niður eftir hlut, hlutnum skilað á bakka, hvíld milli kafana 10 sekúndur.
- Hoppa eða stinga sér út í laug, synda 25 m, kafa eftir björgunarbrúðu í dýpsta hluta laugar, færa björgunarbrúðu upp á yfirborðið og synda 25 m til baka, lyfta björgunarbrúðu upp á bakka með aðstoð eins laugarvarðar.
- Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu ljúka árlegu námskeiði í skyndihjálp og björgun fyrir sund- og baðstaði og standast alla verklega þætti þess námskeiðs. Sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur skulu ljúka þessu námskeiði á tveggja ára fresti. (Tíðni sbr. ákvæði reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, með breytingum í reglugerðum nr. 773/2012 og 205/2014. Sjá einnig töflu fyrir ofan, Hæfnispróf starfsmanna sem sinna laugargæslu, sundkennara, sundþjálfara og leiðbeinenda.)
- Fara yfir öryggisatriði og útbúnað (öryggis- og sjúkrabúnað) á viðkomandi sund- og baðstað.
Standist viðkomandi ekki einstaka þætti hæfnisprófsins skal hann endurtaka þá hluta innan mánaðar hjá sama leiðbeinanda.
Heilnæmi baðvatns
Árið 2008 hófst samstarfsverkefni heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og Umhverfisstofnunar þar sem kannað var heilnæmi laugarvatns og öryggi á sundstöðum um allt land. Alls voru skoðaðir 124 sundstaðir og rannsökuð 376 vatnssýni. Úttektin var endurtekin árið 2013.
Lagðar voru spurningar fyrir ábyrgðaraðila sundstaðanna um innra eftirlit, þjálfun starfsfólks og hvaða skyndihjálparbúnaður væri til staðar. Reglum um aldurstakmark var vel framfylgt en á nokkuð marga sundstaði vantaði skriflegar öryggisreglur, neyðaráætlanir, merkingar um dýpi lauga og merkingar um bann við dýfingum. Björgunartæki sem eiga að vera til staðar vantaði í um 25% tilfella. Á um 80% sundstaða höfðu verið haldin námskeið í skyndihjálp annað hvert ár fyrir afgreiðslufólk og baðverði og á um 75% sundstaða höfðu verið haldin árleg námskeið sem lauk með hæfnisprófi starfsmanna sem sinna laugargæslu.
Einnig var spurt um tíðni klórmælinga og skráningu þeirra. Vatnssýni voru tekin úr samtals 376 sund- og setlaugum og var mældur í þeim gerlafjöldi við 37°C, frír og bundinn klór, hiti og sýrustig. Bakterían Pseudomonas aeruginosa var mæld í 182 sýnum. Niðurstöðurnar sýna ástandið eins og það var þegar sýnin voru tekin en segja ekki til um ástandið á öðrum tíma.
Mikill munur var á niðurstöðum örverusýna eftir flokkum lauga. Munurinn endurspeglar að miklu leyti mismunandi vatnshreinsibúnað og klór- og sýrustigsstýringu í laugunum.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





