Baðstaðir í náttúrunni
Í samræmi við 4. gr. reglugerðar nr. 460/2015 um baðstaði í náttúrunni ber Umhverfis- og orkustofnun að birta, fyrir 1. mars ár hvert, lista yfir baðstaði í 1. og 2. flokki.
Flokkun baðstaða í náttúrunni
Samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar flokkast baðstaðir í náttúrunni í þrjá meginflokka.
Þrír meginflokkar baðstaða
- 1. flokkur: Baðstaðir þar sem reglubundinn rekstur fer fram. Aðsókn baðgesta er reglubundin yfir allt árið. Baðstaðir í 1. flokki eru starfsleyfisskyldir.
- 2. flokkur: Baðstaðir þar sem tilfallandi rekstur fer fram. Aðsókn baðgesta getur verið reglubundin eða mismunandi eftir árstíðum. Baðstaðir í 2. flokki eru starfsleyfisskyldir.
- 3. flokkur: Baðstaðir þar sem ekki er um rekstur að ræða. Aðsókn baðgesta getur verið reglubundin eða mismunandi eftir árstíðum.

Heilbrigðisnefnd flokkar baðstaði á sínu starfssvæði og sendir Umhverfis- og orkustofnun fyrir 1. mars ár hvert lista yfir baðstaði í 1. og 2. flokki sem hafa starfsleyfi. Umhverfis- og orkustofnun birtir listann á vef sínum þar sem heilbrigðisnefndir og rekstraraðilar geta komið á framfæri upplýsingum um lokanir og hættur í umhverfi baðstaðanna.
Baðstaðir í 1. og 2. flokki eftir heilbrigðiseftirlitssvæðum
| Heilbrigðiseftirlitssvæði | 1. flokkur – náttúrulaug | 2. flokkur – náttúrulaug |
|---|---|---|
| Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) | Vök Baths, Vök við Urriðavatn, 701 Egilsstaðir | Laugarfell, Fljótsdalshreppi, 701 Egilsstaðir (2 setlaugar) |
| Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra (HNV) | Engin | Reykir á Reykjaströnd; Hveravellir |
| Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) | Bláa lónið – Heilsulind; Bláa lónið – Lækningalind; Bláa lónið – Retreat | Engin |
| Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra (HNE) | Baðlónið – Mývatnssveit | Hjalteyri ehf., Hörgársveit |
| Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur (HER) | Ylströndin í Nauthólsvík | Engin |
| Heilbrigðiseftirlit Vesturlands (HVL) | Krauma ehf.; Hótel Húsafell ehf. (rekstur Giljabaða); Lýsuhólslaug; Hreppslaug | Ströndin, Langasandi – Akranesi |
| Heilbrigðiseftirlit Suðurlands (HSL) | Gamla laugin, Hvammi, 845 Flúðir | Engin |
| Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis (HHK) | Engin | Engin |
| Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða (HVF) | Engin | Engin |
| Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis (HKJ) | Engin | Engin |
Heilnæmi og gæði baðvatns
Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 460/2015 um baðstaði í náttúrunni skal heilbrigðisnefnd senda Umhverfis- og orkustofnun niðurstöður mælinga og mat á heilnæmi og gæðum baðvatns á baðstöðum í 1. og 2. flokki. Umhverfis- og orkustofnun birtir upplýsingarnar hér á vefnum.
Rannsóknarniðurstöður baðvatns
Fontana, Laugarvatni
+Gamla laugin, Flúðum
+Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





