Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Óhappa- og slysaskráning

Verði óhapp er mikilvægt að skrá atburðinn vegna innra eftirlits og utanumhalds um starfsemina. Verði slys þar sem barn meiðist og þarf að fara á bráðamóttöku sjúkrahúss eða heilsugæslu skráist það í Slysaskrá Íslands. Því er mikilvægt að fylla út þar til gert eyðublað vegna óhappa þegar allt er um garð gengið.

Áhættumat hefur verið tekið upp á ýmsum stöðum, svo sem í leikskólum, íþróttahúsum og á sund- og baðstöðum, og er skráning óhappa og slysa mikilvægur hluti þess. Starfsfólk þarf að þekkja skráningarferlið og vita hvar eyðublöðin eru.

Helstu skráningaratriði í kjölfar slyss

  • Nafn
  • Kennitala
  • Kyn
  • Dagsetning óhapps
  • Tími óhapps
  • Tegund óhapps
  • Starfsemi, heimilisfang
  • Lýsing á atviki
  • Áverkar
  • Athugasemdir (nánar um aðstæður og atvik)
  • Tilkynning um slys (til dæmis til foreldra, tryggingafélags eða heilbrigðiseftirlits)
  • Eftirfylgni (til dæmis fór heim eða í læknisþjónustu í fylgd foreldra, kallað á sjúkrabíl, áætlun um úrbætur)

Eyðublöð

Hér eru óhappaskráningarblöð fyrir leik- og grunnskóla, íþróttahús og sund- og baðstaði, sem einnig má hafa til viðmiðunar fyrir aðra starfsemi, og skráningarblað fyrir óhöpp sem verða á öðrum stöðum.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800