Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Leiksvæði og öryggi

Öllum er okkur annt um öryggi barna. Hér eru upplýsingar og reglur um aðbúnað á leiksvæðum til að tryggja börnum öruggt umhverfi til leikja. Um leiksvæði gildir reglugerð nr. 1025/2022 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.

Ábyrgð og skoðanir

Um leið og barn kemur inn á leiksvæði heldur það á vit ævintýra, eins langt og hugurinn leiðir það. Við gleðjumst yfir ánægju barna af leiknum en á sama tíma er mikilvægt að ekki skapist hætta við leik og starf á leiksvæðum, hvort sem er í eða við leikskóla, skóla, á gæsluvöllum eða á opnum leiksvæðum.

Þegar meta skal hve örugg börn eru á leiksvæðum er litið til heildarmyndar svæðisins, það er hvernig leikvallatækin og leiksvæðin eru hönnuð og hvernig frágangi og viðhaldi er háttað. Almenna reglan er að rekstraraðili leiksvæðisins beri ábyrgð á öryggismálum þess, oftast sveitarfélag eða einkaaðili. Eigendur fjöleignarhúsa bera ábyrgð á rekstri og eftirliti leiksvæða við sín hús.

Rekstraraðili skal sjá til þess að:

  • leiksvæði sé skoðað reglulega með tilliti til augljósrar hættu, svo sem skemmda á leiktækjum og yfirborðsefnum vegna notkunar eða veðurs. Slíka reglubundna yfirlitsskoðun skal framkvæma daglega til vikulega eftir notkun og álagi. Dagleg yfirferð leikskólakennara áður en börn fara út að leika er dæmi um slíka skoðun.
  • rekstrarskoðun sé framkvæmd, en hún er ítarlegri en reglubundin yfirlitsskoðun. Þá er til dæmis virkni og stöðugleiki leikvallatækja skoðaður og í kjölfarið getur þurft að fara í viðhald og viðgerðir. Rekstrarskoðun skal framkvæma að minnsta kosti ársfjórðungslega.
  • aðalskoðun sé framkvæmd einu sinni á ári af faggiltum skoðunaraðila til að staðfesta öryggi leiksvæðisins í heild.

Góð ráð

  • Kannaðu hvort haft er eftirlit með leiksvæðinu sem barnið þitt notar. Ef ekki, gerðu kröfu til rekstraraðila um að slíkt verði gert.
  • Ef kaupa á leiktæki í heimilisgarðinn skal tryggja að það sé CE-merkt, sem staðfestir að það uppfylli kröfur Evrópusambandsins. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur eftirlit með því að leikvallatæki á markaði uppfylli settar reglur um öryggi en heilbrigðisnefndir hafa eftirlit með leikvallatækjum í notkun og öryggi leiksvæða.

Leiðbeiningar fyrir leiksvæði

Leiðbeiningarnar eru unnar samkvæmt reglugerð nr. 1025/2022 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að öryggi barna og annarra í leik og umgengni við leikvallatæki og leiksvæði með því að tryggja að þau séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt. Reglugerðin er sett á grundvelli 4. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 27. gr. laga nr. 134/1995 um öryggi vöru og markaðsgæslu.

Reglugerðin gildir um öryggi leiksvæða, leikvallatækja og annarra tækja sem börn nota til leikja á skipulögðum leiksvæðum og eftirlit með þeim, hvort sem um er að ræða tímabundna starfsemi eða til frambúðar. Hún gildir einnig um skapandi leiksvæði.

Sandkassar á leiksvæðum barna

  • Sandkassar skulu þannig gerðir og þeim viðhaldið að þeir valdi börnum ekki hættu.
  • Viðarvörn og málning skal vera samkvæmt reglugerð nr. 750/2008 um notkun og bann við notkun tiltekinna efna í málningu og viðarvörn.
  • Skrúfur, boltar og aðrar festingar skulu fræstar inn svo ekki sé hætta á meiðslum eða fatasliti.
  • Sandur í sandkössum á að vera hreinn.
  • Skipt skal um sand að minnsta kosti árlega, að vori (lok apríl eða byrjun maí).
  • Æskilegt er að byrgja sandkassa á nóttunni og þegar þeir eru ekki í notkun, svo kettir og önnur dýr komist ekki í sandinn. Byrgja skal með loki eða yfirbreiðslu sem hleypir lofti í gegn.
  • Ábyrgðarmaður samkvæmt innra eftirliti leikskóla, skóla eða annars staðar þar sem það á við skal ganga úr skugga um að morgni, áður en börn fara í sandkassa, að ekki séu aðskotahlutir í sandinum.
  • Á opnum leiksvæðum skal ábyrgðarmaður fylgjast með ástandi sandsins daglega eða vikulega eftir því sem við á.

Aðalskoðun

Aðalskoðun leiksvæða skal framkvæmd einu sinni á ári af faggiltum skoðunaraðila. Faggilding skoðunarstofa á Íslandi er í höndum ISAC, faggildingarsviðs Hugverkastofunnar, og þar má finna lista yfir faggilta aðila.

Starfsmenn faggiltra skoðunarstofa sem framkvæma aðalskoðun leikvallatækja og leiksvæða verða að geta framvísað skilríkjum um að þeir hafi lokið námskeiði sem veitir þjálfun í aðalskoðun leiksvæða. Umhverfis- og orkustofnun viðurkennir slíkt námskeið hjá RoSPA (Royal Society for the Prevention of Accidents í Bretlandi) eða sambærilegt námskeið.

Um öryggi leiktækja sem ætluð eru til einkanota fer samkvæmt reglum um öryggi leikfanga.

Rekstrarskoðun

Til er þýdd og staðfærð handbók fyrir rekstrarskoðun leiksvæða, skemmtigarða og hjólabrettavalla. Handbókin er gefin út af RoSPA (Royal Society for the Prevention of Accidents) í Bretlandi.

Reglulega skoðun leiksvæða er best að gera á kerfisbundinn hátt. Mikilvægt er að nota alltaf sömu aðferðina til að forðast að missa af einhverju. Í handbókinni eru upplýsingar og gögn sem hjálpa til við kerfisbundna skoðun, þar á meðal fjöldi gátlista, og bent er á flýtileiðir við skoðun algengustu leikvallatækja.

Öryggisvísir leiksvæða

Öryggisvísir leiksvæða er leiðarvísir um öryggismál leiksvæða og leikvallatækja ásamt undirlagi þeirra, hvort sem leiksvæðið er innan dyra eða utan. Hann er ætlaður öllum sem með einum eða öðrum hætti koma að gerð eða rekstri leiksvæða.

Öryggisvísinum er skipt í tvo meginhluta, annars vegar um hönnun leiksvæða og hins vegar um rekstur þeirra. Báðir hlutarnir eru settir upp sem flæðirit sem gefa yfirlit yfir feril öryggismála við hönnun og gerð leiksvæðis annars vegar og rekstur og eftirlit hins vegar.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800