Öryggismerkingar
Leiðbeiningar um öryggismerkingar á sund- og baðstöðum eru unnar vegna reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum, sem tók gildi 1. janúar 2011.
Nýjar merkingar 2025
Á sund- og baðstöðum hér á landi eiga að vera alþjóðleg öryggis-, varúðar- og leiðbeiningamerki. Þar sem mikill fjöldi innlendra og erlendra gesta kemur saman er mikilvægt að notað sé alþjóðlegt, staðlað og myndrænt merkjakerfi. Slík merki draga úr þörf á texta og þar með líkum á misskilningi vegna tungumálaörðugleika.
Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út merkingar fyrir sund- og baðstaði ásamt leiðbeiningum um uppsetningu þeirra. Skjölin eru vigurskjöl (SVG) sem henta til prentunar í hvaða stærð sem er.

Leiðbeiningar
Samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 er skylt að merkja greinilega ýmsa þætti er varða öryggi og slysahættu, svo sem hitastig í setlaugum, dýpi lauga þar sem það er minna en 1,5 m eða meira en 3,0 m, hættu við dýfingar, hálku á laugarbökkum og annað sem nauðsynlegt þykir vegna öryggis sundgesta. Skilti skulu staðsett þannig að laugargestir komist ekki hjá því að sjá þau og upplýsingar á þeim skulu vera skýrar og læsilegar. Í starfsleyfi skulu vera sérstök ákvæði um fyrirkomulag merkinga, stærð og gerð skilta og staðsetningu þeirra með hliðsjón af aðstæðum á hverjum stað.
Notkun staðlaðra merkjakerfa, þar sem hver tegund merkja hefur sína liti og lögun og notar frekar myndtákn en letur, eykur öryggi og dregur úr slysahættu. Mikilvægt er að myndir og letur séu skýr og að stærð þeirra taki mið af lestrarfjarlægð. Hlutfall leturstærðar og fjarlægðar lesanda frá skilti má sjá í töflunni.
| Stærð leturs (pkt) | Fjarlægð frá lesanda (cm) |
|---|---|
| 12 | 45 |
| 18 | 70 |
| 24 | 90 |
| 28 | 115 |
| 36 | 135 |
| 48 | 180 |
| 60 | 230 |
| 72 | 275 |
Við hönnun öryggismerkja skal taka mið af staðlinum ISO 3864-1 Graphical symbols – Safety colours and safety signs – Part 1: Design principles for safety signs and safety markings hvað varðar útlit, lögun og liti merkja.
Stöðluð öryggismerki koma ekki í stað góðra verklagsreglna, leiðbeininga, annarra slysavarna og þjálfunar starfsfólks.
Merki sem eiga að vera til staðar
- Yfirlitskort af helstu aðstöðu, svo sem búningsklefum, sturtum, baðstofu, neyðarútgöngum, staðsetningu heitra potta og lauga og hvar dýfingar eru bannaðar.
- Öryggisreglur sem rekstraraðili setur til að stuðla að öryggi gesta, til dæmis um leyfilega hegðun gesta og aldurstakmark barna.
- Að gestir skuli þvo sér án sundfata áður en farið er í laug.
- Hitastig vatns í pottum.
- Dýpi laugar.
- Hvar botn hallar bratt, eða við miðja langhlið ef botninn hallar jafnt.
- Reglur í vatnsrennibraut.
- Hálkuviðvörun.
Tegundir og útlit merkja
Lágmarksstærð merkja er 35 cm, það er þvermál hrings, hlið í jafnhliða þríhyrningi, hlið á ferningi og skammhlið á rétthyrningi.
Bannmerki
Kringlótt með skástriki. Öryggislitur rauður, andstæður litur hvítur og mynd í svörtum lit.
Dæmi: Dýfingar bannaðar.
Skyldumerki
Kringlótt. Öryggislitur blár, andstæður litur hvítur og mynd í hvítum lit.
Dæmi: Barnahópar noti auðkennismerki.
Viðvörunarmerki
Þríhyrningur. Öryggislitur gulur, andstæður litur svartur og mynd í svörtum lit.
Dæmi: Varúð hálka, botn dýpkar bratt.
Neyðarútgangur og öryggisaðstaða
Ferningur eða rétthyrningur. Öryggislitur grænn, andstæður litur hvítur og mynd í hvítum lit.
Dæmi: Neyðarútgangur, staðsetning skyndihjálparbúnaðar.
Brunavarnir
Ferningur eða rétthyrningur. Öryggislitur rauður, andstæður litur hvítur og mynd í hvítum lit.
Dæmi: Brunaboði, staðsetning slökkvibúnaðar.
Viðbótarupplýsingar
Ferningur eða rétthyrningur. Öryggislitur hvítur.
Dæmi: Texti eða skýringar undir öðru merki.
Staðsetning merkja
Merkjunum skal velja stað þannig að gestir komist ekki hjá því að sjá þau á leið sinni um svæðið. Letur- og myndstærð skal vera í samræmi við eðlilega lestrarfjarlægð að teknu tilliti til sjónskertra, en aldrei minni en 70 mm. Leturgerðirnar Tahoma eða Arial og lágstafir henta sjónskertum betur en aðrar gerðir og ef notaðir eru breiðir stafir þarf að auka bil milli stafa. Merkin eiga að vera á lóðréttum fleti. Frístandandi skilti skulu vera stöðug og ná að minnsta kosti 1 m hæð.
- Inngangur og afgreiðsla: yfirlitskort og öryggisreglur.
- Búnings- og baðaðstaða: að gestir skuli þvo sér án sundfata áður en farið er í laug.
- Við setlaugar: hitastig vatns.
- Við laugar: dýpi vatns þar sem það er 1,5 m eða minna eða 3,0 m eða meira og að dýfingar séu bannaðar. Þar sem botn byrjar að halla bratt, eða við miðja langhlið ef hann hallar jafnt.
- Við rennibraut: hegðun í rennibraut í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda.
- Á laugarbökkum og þar sem það á við: hálkuviðvörun.
Nánari staðsetningu merkjanna verður að ákveða á hverjum sundstað fyrir sig.
Öryggi barna í sundi
Börn eru stór hópur sundlaugargesta og mikilvægt er að tryggja öryggi þeirra sem best. Samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 mega börn yngri en 10 ára ekki fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi, 15 ára eða eldri. Hver fylgdarmaður má þó ekki hafa með sér fleiri en tvö börn, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barnanna.
Þegar farið er með hóp barna yngri en 10 ára í sund eiga þau að vera með auðkennismerki, svo sem sundhettur, sundvesti, armbönd eða sambærilegt í áberandi lit. Það auðveldar hópstjórum að fylgjast með börnunum meðan þau eru í laug. Hópstjórar þurfa að kynna sér reglur sundstaðarins og aðstoða starfsfólk við gæslu barnanna. Ekki mega vera fleiri en fimmtán börn, 10 ára eða yngri, í umsjón hvers hópstjóra.
Ekki gleyma mér
Þeir sem fara með börn í sund bera ábyrgð á öryggi þeirra. Árið 2020 var árvekniátakinu Ekki gleyma mér hrundið af stað til að minna foreldra, forráðamenn og aðra á ábyrgð sína þegar þeir fara með börn yngri en 10 ára í sund, og að þeir fylgist með börnunum og séu með þeim í og við laugarnar öllum stundum. Gerð voru veggspjöld fyrir sundstaði sem hægt er að prenta út.
Mikill árangur hefur náðst í öryggismálum á sundstöðum og slysum á börnum í sundlaugum hefur fækkað verulega undanfarin 20 ár. Þann árangur má að mestu þakka rekstraraðilum sundstaða og starfsfólki þeirra, auk eftirlits heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Umhverfis- og orkustofnun hvetur alla til að leggja sitt af mörkum til að auka öryggi barna í sundi enn frekar.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





