Athugið að skrifstofa Umhverfis- og orkustofnunar á Suðurlandsbraut í Reykjavík verður lokuð á meðan óveðrið gengur yfir þann 26. mars 2026.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Húsnæði

Inniloft, raki, mygla og hermannaveiki

Við verjum stórum hluta ævinnar innanhúss. Í því sambandi er gott að hafa í huga að í innilofti leynast mengunarefni sem geta haft slæm áhrif á heilsu.

Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út sérstakar leiðbeiningar um inniloft, raka og myglu. Þar er fjallað um hvernig best sé að viðhalda og bæta heilnæmi innilofts, og bregðast við óheilnæmu innilofti. Auk þess er fjallað um eftirlit með húsnæði og ábyrgð eigenda og leigjanda.

Á vef Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA) má einnig finna gagnlegt upplýsingarit á íslensku um loftgæði, þar sem meðal annars er komið inn á loftgæði í húsnæði.

Þá hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gefið út leiðbeiningar um loftgæði innandyra, þar sem sjónum er sérstaklega beint að raka og myglu.

Að lokum má hér finna upplýsingar um bakteríu sem nefnd er legionella, en sýking af völdum hennar er þekkt sem svokölluð hermannaveiki.

Áhrifaþættir fyrir heilnæmi innilofts

Nánar um leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar

Oftast er einfalt að viðhalda heilnæmu innilofti í híbýlum. Margt getur þó haft áhrif og mikilvægt er að huga að því hvernig hægt sé að viðhalda heilnæmu innilofti eða bæta það. Þannig má minnka líkur á að inniloft geti haft slæm áhrif á heilsu þeirra sem þar dvelja.

Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út leiðbeiningar um inniloft, raka og myglu, hvernig best sé að viðhalda og bæta heilnæmi innilofts og hvernig bregðast skuli við verði inniloftið óheilnæmt. Einnig er fjallað um eftirlit með húsnæði og ábyrgð eigenda og leigjenda húsnæðis. 

Í leiðbeiningunum er að finna upplýsingar og leiðbeiningar fyrir almenning um: 

  • Inniloft 
  • Raka 
  • Myglu 
  • Hreinsun myglu og úrbætur 
  • Eftirlit og ábyrgð

Í fylgiskjali 1 er samantekt á gátlistum um ýmislegt er varðar innililoft, raka og myglu og gott getur verið að hafa við höndina þegar hugað er að þessum þáttum:

  • Gátlisti 1 – góð ráð fyrir heilnæmt inniloft 
  • Gátlisti 2 – mat á rakastigi 
  • Gátlisti 3 – ákjósanlegar aðstæður fyrir sýnatöku 
  • Gátlisti 4 – góð ráð til að varna of háu rakastigi 
  • Gátlisti 5 – hreinsun myglu 
  • Gátlisti 6 – fullnægjandi hreinsun 
  • Gátlisti 7 – úrbætur

Raki og mygla

Evrópu er áætlað að of mikill raki sé í 10-50% (mismikið eftir löndum) af því húsnæði sem fólk býr, vinnur og leikur sér í. Of mikill raki veldur þungu lofti og saggalykt. Loft kólnar við raka veggi en það kallar á meiri upphitun með hærri hitakostnaði. Of mikill raki í húsnæði getur haft slæm áhrif á heilsu fólks og þau sem búa í slíku húsnæði eru í meiri hættu en aðrir að fá sjúkdómseinkenni og sýkingar í öndunarvegi, ofnæmiskvef og astma. Fólk er misviðkvæmt fyrir myglu og sumir hópar eru sérlega viðkvæmir. Sérstaklega þarf að halda raka og myglu frá börnum, eldra fólki, fólki með astma, exem og ofnæmi eða bælt ónæmiskerfi. Rannsóknir sýna að þeir sem búa í vel einangruðum húsum og vel loftræstum leita síður til læknis og leggjast síður inn á sjúkrahús vegna kvilla í öndunarfærum en þeir sem búa í röku húsnæði.

Oftast er einfalt að viðhalda heilnæmu innilofti í híbýlum, til dæmis með því að lofta vel út og þrífa híbýli vel. Margt getur þó haft áhrif og mikilvægt er að huga að því hvernig hægt sé að viðhalda heilnæmu innilofti eða bæta það. Þannig má minnka líkur á að inniloft geti haft slæm áhrif á heilsu þeirra sem þar dvelja.

Leiðbeiningar um loftgæði innandyra

Líffræðilegir þættir sem tengjast innilofti, geta haft áhrif á heilsu fólks og eru fjölbreytilegir, allt frá frjókornum og gróum plantna til baktería, myglu, þörunga og nokkurra frumdýra sem er að finna bæði úti og inni. Það eru sterkar vísbendingar um hættu sem stafar af nokkrum líffræðilegum þáttum sem menga inniloft. Þrátt fyrir það var niðurstaða alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sú að ekki væri hægt að greina hvaða tegundir örvera eða annarra líffræðilegra þátta hafi áhrif á heilsu fólks. Þetta stafar af því að oft verður fólk fyrir áreiti frá svo mörgum þáttum samtímis og vegna þess hvað flókið er að ákveða magn þeirra. Einnig vegna mismunandi heilsufarseinkenna sem geta komið fram.

Því var ekki hægt að setja fram leiðbeiningar eða viðmið um magn tiltekinna lífræðilegra þátta, en í stað þess voru samdar leiðbeiningar í þeim tilgangi að vernda heilsu og ákvarða áhættuþætti með því að skilgreina vísa, eins og til dæmis raka, um loftgæði innandyra. Þannig skilgreina leiðbeiningarnar vandamál og kringumstæður sem geta valdið áhættu, en innihalda ekki viðmið um ásættanlegt magn líffræðilegra þátta. Tilgangur leiðbeininganna er að hjálpa heilbrigðisyfirvöldum og almenningi að greina áhættu og draga úr henni. Fyrst og fremst er litið til þess að greina vandann, til dæmis hvort raki sé í húsnæði og þá ákveða um viðgerð á skemmdum og hvernig megi loka fyrir leka.

Leiðbeiningar WHO um loftgæði innandyra

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út leiðbeiningar um loftgæði innandyra, sem snúa fyrst og fremst að raka og myglu.

Leiðbeiningar WHO eru afrakstur tveggja ára ítarlegrar yfirferðar vinnuhóps 36 sérfræðinga á heimsvísu á opinberum rannsóknaniðurstöðum, sem fyrir liggja á þessu sviði. Niðurstaða sérfræðinganna er sú að þeir sem starfi eða búi í raka- og/eða mygluskemmdu húsnæði séu í meiri hættu á því að fá einkenni öndunarerfiðleika og astma. Í leiðbeiningunum eru lagðar til fyrirbyggjandi aðgerðir eða viðgerðir á raka- og mygluskemmdum til þess að draga úr skaðlegum áhrifum á heilsu manna.

Mörg lönd innan ESB eiga í vandræðum með raka í húsnæði. Talið er að 20-30% heimila séu með raka- og mygluskemmdir. Eins og kemur fram að ofar benda traustar vísbendingar til þess að raki í byggingum stofni heilsu fólks í hættu. Við slíkar aðstæður vaxa hundruð tegunda baktería og sveppa innandyra og gefa frá sér gró, frumubrot og efni út í loftið. Innöndun eða snerting við þessi aðskotaefni hefur verið tengd við nýgengi eða að einkenni öndunarfærasjúkdóma, ofnæmi, astmi og ónæmisviðbrögð ágerist. Börn eru sérlega viðkvæm fyrir slíkum áhrifum.

Hvað er hermannaveiki?

Legionella er baktería sem er víða í náttúrunni og þrífst vel í vatni. Ef Legionella nær að „hreiðra um sig“ í vatnskerfi bygginga til dæmis í blöndunartækjum getur smit átt sér stað þegar agnarsmáir vatnsdropar, sem mengaðir eru af legionellubakteríum, komast ofan í lungu við innöndun til dæmis þegar farið er í sturtu. Smit getur einnig orðið við notkun heitra potta, í gufuböðum og við notkun rakatækja ef ekki er notað ferskt vatn.

Einkenni Legionellusýkingar (einnig kölluð Hermannaveiki) eru hár hiti, hósti, vöðvaverkir, höfuðverkur, mæði og stundum lungnabólga. Sjúkdómurinn er meðhöndlaður með sýklalyfjum en getur orðið mjög alvarlegur, einkum hjá fólki með veiklað ónæmiskerfi og undirliggjandi sjúkdóma. Vægara form Legionellusmits er Pontiac-fever sem veldur svipuðum einkennum en gengur fljótt yfir. Legionellusýking og Pontiac fever smitast ekki milli manna.

Bakterían þrífst við hitastig milli 20°C og 45°C og drepst ekki fyrr en hitastig fer yfir 50°

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800