Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Húðrof og tengd starfsemi

Húðflúrun, húðgötun, húðrof og fegrunarflúr

Rekstur húðflúrstofa og stofa þar sem fram fer húðgötun, húðrof og fegrunarflúr er skráningar- og eftirlitsskyldur hjá heilbrigðiseftirliti þess sveitarfélags þar sem starfsemin fer fram.

Skráning starfseminnar fer fram á Ísland.is.

Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsskilyrði fyrir skráningarskyldan rekstur. Annarsvegar er um að ræða almenn starfsleyfisskilyrði fyrir hollustuhætti og hins vegar sértæk starfsskilyrði fyrir starfsemi þar sem fram fer húðflúrun, húðgötun, húðrof og fegrunarflúr.

Námskeið í sóttvörnum fyrir húðrof

Umhverfis- og orkustofnun stendur fyrir námskeiðum í sóttvörnum fyrir húðrof. Námskeiðið er skylda fyrir alla þá sem starfa við húðrof og hafa ekki lokið námi á heilbrigðissviði sem felur í sér fræðslu um smitgát og sóttvarnir. Taka skal námskeiðið áður en viðkomandi hefur störf við húðrof og svo á fimm ára fresti eftir það.

Námskeiðin eru auglýst hér á vefnum.

Frá og með 1. janúar 2026 þurfa allir sem stunda húðrof að geta framvísað staðfestingu þess efnis að þeir hafi setið námskeiðið eða séu með tilskylda menntun á heilbrigðissviði.

Hvað felur námskeiðið í sér?

Lengd

6 klst.

Námskeiðshaldari

Umhverfis- og orkustofnun

Fyrir hverja

Alla sem starfa við húðrof, svo sem húðgötun, húðflúrun, varanlega förðun og nálastungur, og hafa ekki lokið námi á heilbrigðissviði sem felur í fræðslu um smitgát og sóttvarnir.

Markmið

Að auka öryggi fyrir bæði þá sem framkvæma húðrof sem og þá sem þiggja slíka meðferð. Á námskeiðinu er farið sérstaklega yfir þætti sem snúa að hreinlæti og sóttvörnum fyrir húðrof sem og takmarkanir á efnainnihaldi húðflúrlita og skartgripa sem settir eru í húð, í því skyni að efla þekkingu þeirra sem starfa við húðrof og færni þeirra við framkvæmd sóttvarna og smitgátar.

Kennsluaðferðir

Fyrirlestrar og sýnikennsla (myndbönd).

Mat á hæfni

Krossapróf þar sem ná þarf lágmarkseinkunn 7 af 10 til að standast hæfniviðmið.

Umfjöllunarefni

  • Lög, reglugerðir og starfsleyfisskilyrði sem gilda um húðrof, húðgötun og húðflúrun.
  • Líkaminn og húðin og algeng viðbrögð við inngripum.
  • Örverur og sýklar, lífsskilyrði þeirra, smitleiðir og sýkingarhætta við húðrof.
  • Hreinsun, sótthreinsun og dauðhreinsun og nauðsynleg efni, tæki og búnaður.
  • Eftirlit með sótthreinsunartækjum (þvottavél) og dauðhreinsunartækjum (sæfum, autoklöfum).
  • Virkni mismunandi sótthreinsiefna.
  • Mikilvægi persónulegs hreinlætis og klæðnaður starfsfólks.
  • Hlífðarbúnaður og rétt notkun hans.
  • Uppsetning, frágangur og þrif á starfstöð.
  • Skylda þess sem stundar húðrof um að leiðbeina viðskiptavini um atriði er varða húðrof, húðflúrun eða húðgötun, svo sem varanleika inngrips, áhættuþætti á borð við lyfjanotkun, undirliggjandi sjúkdóma eða ofnæmisvalda sem geta haft áhrif á fyrirhugaða meðferð, viðeigandi eftirmeðferð, lágmarksaldur og annað það sem nauðsynlegt er fyrir viðskiptavin að hafa vitneskju um til að geta tekið upplýsta ákvörðun varðandi meðferðina.
  • Skráning og varðveisla upplýsinga varðandi viðkomandi meðferð, meðal annars um innihald húðflúrlita.
  • Kröfur varðandi málma í skartgripum sem settir eru í húð.
  • Kröfur varðandi efni notuð við húðflúr.
  • Meðferð almenns og sóttmengaðs úrgangs.
  • Meðferð beittra og/eða oddhvassra hluta og viðbrögð við atvikum og óhöppum.
  • Gerð áhættu- og viðbragðsáætlana vegna óvæntra atvika svo sem yfirliðs, blæðingar, bráðaofnæmis og þess háttar.

Hæfniviðmið

  • Þekkja til laga og reglna sem gilda um starfsemina.
  • Þekkja til líkamlegra þátta sem þessi starfsemi snertir, einkum húðina.
  • Þekkja mögulega sýkingarhættu við vinnu.
  • Þekkja reglur um persónulegt hreinlæti, klæðnað starfsfólks og notkun hlífðarbúnaðar.
  • Þekkja hvernig ber að þrífa starfsstöð og vinnustaðinn fyrir og eftir hverja meðferð.
  • Þekkja mun á sótthreinsun og dauðhreinsun og reglur um að einungis dauðhreinsaðir hlutir mega fara inn í húðina eða líkamann.
  • Þekkja reglur um hvaða málma má nota í húðgötun.
  • Þekkja reglur um hvaða efni og litarefni eru notuð við húðflúr svo og hvaða áhrif og afleiðingar notkun slíkra efna getur haft.
  • Þekkja til skyldu til að veita skriflegar og munnlegar leiðbeiningar varðandi húðrof, húðgötun og húðflúrun.
  • Þekkja reglur um meðferð á sérstökum úrgangi, þar með talið á sóttmenguðum úrgangi.
  • Hafa grunnþekkingu til að gera áhættu- og viðbragðsáætlanir varðandi til dæmis hvað skal að gera ef fólk kvartar undan vanlíðan, fellur í yfirlið eða viðkomandi viðskiptavini snöggblæðir eða ekki er hægt að stöðva blæðingu.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800