Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Mengandi starfsemi

Starfsleyfi fyrir mengandi starfsemi

Starfsleyfi er skrifleg heimild til að starfrækja tiltekinn atvinnurekstur. Markmið starfsleyfis er að tryggja að starfsemi sem getur haft áhrif á umhverfi eða heilsu sé rekin í samræmi við lög og reglur um hollustuhætti og mengunarvarnir. Starfsleyfi eru gefin út til tiltekins tíma eða endurskoðuð reglulega.

Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi sem fellur undir viðauka I og II við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir. Stofnunin gefur einnig út starfsleyfi fyrir ákveðna starfsemi utan sveitarfélagamarka.

Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga gefa út starfsleyfi fyrir aðra starfsleyfisskylda starfsemi. Sum starfsemi er þess í stað skráningarskyld.

Starfsleyfi og eftirlit

Kortið sýnir starfsstöðvar sem Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út starfsleyfi, leyfi eða fyrirmæli um frágang og vöktun fyrir. Sjálfgefið eru sýnd leyfi í gildi. Smelltu á punkt eða leitaðu að starfsstöð til að opna síðu hennar með leyfum, eftirlitsskýrslum og öðrum gögnum.

Hér eru einnig starfsstöðvar sem þurfa leyfi án þess að teljast mengandi, svo sem föngun og geymsla koldíoxíðs og afmörkuð notkun erfðabreyttra lífvera.

Upplýsingar sóttar af ust.is 7.–13. október 2026.

Athugið: staðsetningar á kortinu geta verið ónákvæmar. Notið til að finna tiltekna starfsstöð.

VestfirðirNorðurland vestraNorðurland eystraAusturlandSuðurlandVesturlandSuðurnes
Í gildiÚr gildi

Starfsstöðvar sem standa mjög þétt eru dreifðar örlítið svo að hver sjáist. Höfuðborgarsvæðið er stækkað í rammanum. Smelltu á landshluta til að þysja að honum.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800