Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Staða fráveitumála

Nýjasta stöðuskýrsla um fráveitumál

Skýrsla um stöðu fráveitumála á Íslandi fyrir árið 2024 kom út í nóvember 2025. Helstu niðurstöður eru í frétt um útgáfuna.

Stöðuskýrsla 2022

Skýrslan byggir á gögnum frá heilbrigðiseftirlitum, Umhverfis- og orkustofnun og rekstraraðilum um allt land. Gögnum er safnað saman frá þéttbýlum sem losa meira en 2.000 persónueiningar sem eru 29 talsins og ná yfir 89% íbúa landsins.

Helstu breytingar milli ára

Tvö þéttbýli uppfylla ákvæði um hreinsun í samræmi við reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp. Þéttbýlin losa minna en 10.000 persónueiningar í sjó sem gerir það að verkum að hreinsikröfur eru ákveðnar miðað við aðstæður og samþykktar af heilbrigðisnefnd. Í báðum tilfellum er um grófhreinsun að ræða (Borgarnes og Dalvík).

Fleiri þéttbýli vinna nú að því að skilgreina viðtaka síður viðkvæman þar sem það á við. Endurmat á að fara fram á fjögurra ára fresti en skortur hefur verið á að sveitarfélög sækist eftir slíkri samþykkt. Níu þéttbýli eiga þess kost að beita eins þreps hreinsun í stað tveggja þrepa og sjö þeirra hafa þegar fengið viðtaka skilgreindan sem síður viðkvæman eða eru í ferli við slíka vinnu.

Til að auðvelda innleiðingu og eftirfylgni ákvæða laga og reglugerða hefur Umhverfis- og orkustofnun gefið út ýmiskonar leiðbeiningar í samstarfi við ýmsa aðila svo sem heilbrigðiseftirlit, sveitarfélög, fráveitur og fleiri.

  • Leiðbeiningar um útreikninga á magni skólps frá þéttbýlum ásamt útreikniskjali.
  • Leiðbeiningar um skilgreiningu fyrir síður viðkvæma viðtaka.
  • Leiðbeiningar um eftirlitsmælingar í hreinsistöðvum og vöktun í viðtaka.
  • Leiðbeiningar um minni fráveitur (lítillegar uppfærðar leiðbeiningar koma út árið 2024).
  • Samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fráveitur (eins þreps hreinsistöðvar, tveggja þrepa hreinsistöðvar, ítarleg hreinsun og viðeigandi hreinsun).
  • Leiðbeiningar fyrir losunarstaði ferðasalerna.
  • Kortasjá fráveitu er í þróun, hægt er að sjá staðsetningar útrása, hreinsistöðva og ferðasalerna á korti. Unnið verður áfram með kortasjána til að tryggja sem besta upplýsingagjöf.
  • Leiðbeiningar um olíuskiljur munu koma út á fyrri hluta ársins 2024.

Eldri stöðuskýrslur

Stöðuskýrsla á tveggja ára fresti

Á tveggja ára fresti tekur Umhverfis- og orkustofnun saman upplýsingar um stöðu skólpmála á Íslandi, í samstarfi við heilbrigðiseftirlit, sveitarfélög og rekstraraðila fráveitna. Heilbrigðisnefndir um allt land taka saman upplýsingar hvert frá sínu svæði og skila þeim til Umhverfis- og orkustofnunar.

Upplýsingunum er síðan skilað til Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA).

Hlutverk sveitarfélaga og heilbrigðisnefnda

Sveitarfélög bera ábyrgð á uppbyggingu fráveitna og skulu koma á fót og reka sameiginlega fráveitu í þéttbýli, samanber lög nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna.

Eigendur fráveitna eru ábyrgir fyrir því að losun frá þeim sé í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1450/2025 um fráveitur og skólphreinsun og skilyrði sem sett hafa verið í starfsleyfi viðkomandi fráveitu.

Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga eru starfsleyfisveitendur fyrir fráveitur, útrásardælustöðvar og skólphreinsistöðvar, samanber reglugerð nr. 550/2008 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Heilbrigðisnefndir hafa eftirlit með fráveitum og skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að skólp verði hreinsað í samræmi við reglugerð um fráveitur og skólphreinsun.

Heilbrigðisnefndir skulu annast eftirlit með fráveituvatni og losun frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli nema þær feli rekstraraðila það í starfsleyfi (innra eftirlit). Nefndirnar geta beitt þvingunarúrræðum til að knýja fram ráðstafanir samkvæmt reglugerðinni í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800