Lög og stjórnsýsla
Lagaramminn
Rammatilskipun Evrópusambandsins um verndun vatns (Directive 2000/60/EC) var samþykkt árið 2000.
Á Íslandi gengur innleiðing vatnatilskipunar undir heitinu „Stjórn vatnamála“. Umhverfis- og orkustofnun hefur umsjón með innleiðingu laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála sem voru samþykkt á Íslandi árið 2011. Meginmarkmið laganna er að stuðla að verndum vatns og vistkerfa þess og þannig hafa bein áhrif á að minnka álag á vatn. Lögin ná yfir grunnvatn og allt yfirborðsvatn (það er straumvötn, stöðuvötn, lón, árósavatn og strandsjó).
Helstu reglugerðir
Lög um stjórn vatnamála mynda ramma fyrir margar reglugerðir á sviði umhverfismála. Þær helstu eru:
- Reglugerð um neysluvatn 536/2001
- Reglugerð um varnir gegn mengun vatns 796/1999
- Reglugerð um varnir gegn mengun grunnvatns 797/1999
- Reglugerð um fráveitur og skólp 798/1999
- Reglugerð um meðhöndlun seyru 799/1999
- Reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit 550/2018
- Reglugerð um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri 804/1999
Að auki tengjast tilskipanir ESB um flóð og haf lögum um stjórn vatnamála.
Samvinnuverkefni
Með heildstæðri stjórn vatnamála er gert ráð fyrir að allir sem nota vatn eða valda álagi á vatn starfi saman og taki þátt í verkefninu, þvert á sveitarfélagsmörk. Stjórn vatnamála er þannig samvinnuverkefni stjórnvalda, stofnana, ráðgjafa, sveitarfélaga, heilbrigðisnefnda og náttúruverndar- eða umhverfisnefnda sveitarfélaga, hagsmunaaðila og almennings sem meðal annars vinna saman í vatnasvæðisnefnd á hverju vatnasvæði.
Einnig vinna sérfræðingar samstarfsstofnana á sviði ferskvatns og sjávar sérhæfð verkefni fyrir Umhverfis- og orkustofnun.
Markmið
Markmið stjórnar vatnamála er að:
- Vernda vatn og vistkerfi þess, hindra frekari rýrnun vatnsgæða og bæta ástand vatnavistkerfa til þess að vatn hljóti heildstæðrar verndar.
- Jafnframt að stuðla að sjálfbærri nýtingu vatns og langtímavernd vatnaauðlindarinnar
Til að ná fram markmiðum skal vinna vatnaáætlun, aðgerðaráætlun og vöktunaráætlun.
Samkvæmt lögunum skal:
„allt yfirborðsvatn vera í mjög góðu eða góðu vistfræðilegu og góðu efnafræðilegu ástandi og allt grunnvatn skal hafa góða magnstöðu og gott efnafræðilegt ástand, þó með þeim fyrirvara að aðgerðir til þess rýri ekki hag íbúa og kostnaður sé ekki úr hófi fram“
(sjá 16. og 18. gr. laga um stjórn vatnamála)
Innleiðingartímabil
Innleiðingartímabil stjórnar vatnamála hófst árið 2011 en hlé var gert á vinnunni frá árinu 2013-2017. Meðal verkefna er að:
- Skilgreina vatnshlot og gerðir vatns
- Safna tiltækum gögnum um vatn
- Kortleggja svæði sem eru vernduð vegna sérstöðu vatns
- Greina álag
- Leggja mat á álag á vatn og áhrif þess
- Kortleggja ástand vatns og gæðaflokka vistfræðilegt ástand þess
- Setja fram umhverfismarkmið um að bæta eða viðhalda ástandi vatns
- Leggja fram aðgerðaráætlun svo að markmiðin náist
- Áætlun um heilsteypta vöktun vatns hér á landi
- Gefa út vatnaáætlun fyrir Ísland
Ráð og nefndir
Ísland er eitt vatnaumdæmi sem síðan er skipt í fjögur vatnasvæði. Við þá ákvörðun er tekið mið af bæði jarðfræðilegum og vatnafræðilegum þáttum. Fyrir hvert vatnasvæði skal setja fram umhverfismarkmið um að draga úr álagi og bæta eða viðhalda góðu ástandi vatns.

Vatnaráð
Eitt vatnaráð starfar á landvísu og er megin hlutverk þess að vera ráðherra til ráðgjafar um stjórn vatnamála. Vatnaráð er skipað til fimm ára í senn. Í ráðinu sitja fimm fulltrúar og fimm varamenn, skipaðir af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, atvinnuvegaráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Á hverju vatnasvæði starfar vatnasvæðisnefnd og á landsvísu starfa tvær ráðgjafanefndar.
Skipað var í núverandi vatnasvæðanefndir árið 2023 og vinna þau til ársins 2026. Þessar nefndir eru mikilvægur hlekkurí því að safna upplýsingum um álag á vatnshlot til þess að hægt sé að vinna álagsgreiningu og út frá henni skipuleggja viðeigandi aðgerðir ef þess er þörf.
Vatnasvæðisnefndir
Í vatnasvæðisnefnd starfa fulltrúar frá sveitarfélögum á viðkomandi vatnasvæði og heilbrigðisnefndum. Hlutverk þeirra er að samræma vinnu á viðkomandi vatnasvæði og afla upplýsinga vegna gerðar stöðuskýrslu, vöktunaráætlunar, aðgerðaáætlunar og vatnaáætlunar. Til viðbótar getur hver vatnasvæðisnefnd skipt sér upp í smærri svæðisbundna hópa eftir þörfum.
Ráðgjafanefndir
Tvær ráðgjafarnefndir eru skipaðar af ráðherra til að starfa með Umhverfis- og orkustofnun á landsvísu:
- Ráðgjafarnefnd fagstofnana og eftirlitsaðila
- Ráðgjafarnefnd hagsmunaaðila, þar á meðal félagasamtaka á sviði náttúruverndar, umhverfismála og útivistar
Umhverfis- og orkustofnun skal hafa náið samráð við ráðgjafarnefndirnar.
Hlutverk ráðgjafarnefnda er að vera Umhverfis- og orkustofnun og vatnaráði til ráðgjafar um atriði sem heyra undir stjórn vatnamála.
Ráðgjafarnefnd fagstofnana og eftirlitsaðila skal leggja fram nauðsynleg gögn vegna vinnu við gerð áætlana samkvæmt lögum þessum og upplýsingar um hvaða gögn liggja fyrir.
Fulltrúar í ráðgjafarnefnd hagsmunaaðila skulu vera til ráðgjafar um þau málefni sem samtök þeirra helga sig. Hvor ráðgjafanefnd ákveður formann og varaformann og hefur starfsmann Umhverfis- og orkustofnunar sér til aðstoðar og til að hafa umsjón með starfi nefndanna.
Nefndarmenn og fundargerðir
Vatnaráð
+Vatnasvæðanefnd 1
+Vatnasvæðanefnd 2
+Vatnasvæðanefnd 3
+Vatnasvæðanefnd 4
+Ráðgjafanefnd fagstofnana og eftirlitsaðila
+Ráðgjafanefnd hagsmunaaðila
+Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





