Stjórn vatnamála
Skilafrestur til og með 31. október 2026: Óskað er eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi árin 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot
Vatn er auðlind sem mikilvægt er að umgangast á ábyrgan hátt, ekki síst fyrir komandi kynslóðir. Við þurfum að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni og náttúrulegu ástandi vistkerfa ferskvatns og strandsjávar. Við þurfum einnig að tryggja gæði grunnvatns. Hreint og gott vatn er lífsnauðsynlegt fyrir bæði menn, dýr og vistkerfi.
Með setningu laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála var sett á fót nýtt stjórnkerfi sem miðar að verndun íslenskrar vatnsauðlindar til framtíðar. Lögin fela í sér rannsóknir og vöktun sem byggir á samvinnu stjórnvalda, stofnana, ráðgjafa, sveitarfélaga, hagsmunaaðila og almennings. Öll leyfi (rannsókna-, nýtinga- og starfsleyfi) sem hafa einhverskonar áhrif á vatn eiga að vera í samræmi við þá stefnumörkun um vatnsvernd sem sett er fram í lögunum og í Vatnaáætlun 2022-2027.
Vatnalíf
Vatnalíf er íslenska heitið á LIFE Icewater verkefninu. Verkefninu er ætlað að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi, að tryggja fumlausa og samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, bæta vatnsgæði, svo sem með úrbótum á fráveitu og hreinsun fráveituvatns, og að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns.

Hreint og gott vatn er lífsnauðsynlegt fyrir menn, dýr og vistkerfi

Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins















