Vernduð og viðkvæm svæði
Fylgjast þarf sérstaklega með vernduðum og viðkvæmum svæðum með tilliti til álags á þau og að ástand þeirra hraki ekki. Þar gegna lög nr. 36/2001 um stjórn vatnamála mikilvægu hlutverki. Samkvæmt 25. gr laga um stjórn vatnamála skal Umhverfis- og orkustofnun halda skrá yfir vernduð og viðkvæm svæði. Í henni skal meðal annars tilgreina vatnsverndarsvæði, vatnavistkerfi, svo og vistkerfi sem tengjast þeim að vatnabúskap, ásamt svæðum sem njóta heildstæðrar verndar samkvæmt lögum eða eru friðlýst vegna sérstöðu vatns. Skráin skal taka til eftirtalinna gerða verndaðra svæða:
Svæði þar sem neysluvatnstaka fer fram og ætluð eru til slíkrar vatnstöku í framtíðinni.
+Svæði sem vernduð eru vegna efnahagslega mikilvægra tegunda vatnalífvera.
+Vatnshlot sem eru tilnefnd/flokkuð sem afþreyingarvötn.
+Svæði sem eru næm fyrir næringarefnum, þar með talið svæði sem eru metin sem svæði í hættu, samkvæmt reglugerð um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri, og svæði, sem eru metin sem viðkvæm svæði, samkvæmt reglugerð um fráveitur og skólp.
+Svæði sem eru tilnefnd í því skyni að friða búsvæði eða tegundir, þar sem viðhald eða umbætur á ástandi vatnsins er mikilvægur þáttur í verndinni.
+Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





