Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Vatnaáætlun

Vatnaáætlun Íslands 2022-2027

Núgildandi vatnaáætlun er jafnframt fyrsta vatnaáætlun sem unnin hefur verið fyrir Ísland. Hún var staðfest af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Víðtækt samráð og umsagnarferli

Í lögum um stjórn vatnamála er umfangsmikið samráð við hina ýmsu aðila innbyggt. Vatnaáætlun og fylgiskjöl hennar voru því unnin í samstarfi við ýmsa hagaðila í gegnum ráðgjafanefndir og aðra sem höfðu beina þátttöku í gerð hennar, til dæmis vatnasvæðanefndir, vatnaráð og fagstofnanir. Drög að vatnaáætlun voru einnig sett í umsagnarferli þar sem öllum gafst kostur á að koma með ábendingar.

Vatnaáætlun Íslands 2028-2033

Næsta vatnaáætlun tekur gildi árið 2028 og er vinna við hana þegar hafin.

Meðal verkefna á dagskrá eru:

  • Uppfæra álagsgreiningu vatnshlota síðan 2013
  • Vinna tengd aðgerðaáætlun 2022-2027
  • Endurafmarka grunnvatnshlot og gefa út leiðbeiningar um mat á efnafræðilegu ástandi ásamt magnstöðu
  • Ákvarða skilgreiningu tilnefndra mikið breyttra og manngerðra vatnshlota
  • Hefja vinnu við gerð ástandsflokkunarkerfi fyrir árósarvatn
  • Vinna nýja vatnaáætlun sem inniheldur einnig vöktunaráætlun og aðgerðaráætlun fyrir allt landið
  • Gera drög að vatnaáætlun 2028-2033 sem fer í mat á umhverfisáhrifum ásamt því að unnið verður svokallað „climate check“ á aðgerðum

Áfanga og verkáætlun (PDF, 844 KB) inniheldur helstu vörður og verkefni við endurskoðun næstu vatnaáætlunar 2028-2033.

Mynd: Haraldur Hugosson - Unsplash

Mynd: Þingvallavatn, Haraldur Hugason - Unsplash

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800