Skil á gögnum
Nauðsynlegt er að skila vöktunargögnum til að geta metið ástand vatnshlota en með vöktunargögnum eru vatnshlot ástandsflokkuð í samræmi við ákvæði laga stjórnar vatnamála og fylgst með mögulegum breytingum eða áhrifum á vatn vegna álags.
Mengandi starfsemi hefur þá skyldu að vakta áhrif sín á umhverfið og er nú vinna í gangi við að innleiða kröfur stjórnar vatnamála í starfsleyfi mengandi iðnaðar. Samtímis er verið að straumlínulaga og auðvelda ferlið við skil á gögnum í gegnum Skilagátt stjórnar vatnamála.
Jafnframt geta vöktunaraðilar til dæmis verkfræðistofur, sveitarfélög, ríkisstofnanir, heilbrigðiseftirlit og náttúrustofur skilað inn vöktunargögnum í skilagáttina.
Umhverfis- og orkustofnun hefur gert leiðbeiningar um hvernig skila eigi gögnum en fyrsta skrefið er að fá aðgang að Skilagáttinni í gegnum island.is.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





