Hávaði vegna framkvæmda
Sérstakar reglur gilda um hávaða vegna framkvæmda, þar sem sérlega þarf að sýna aðgæslu nálægt leik- og grunnskólum, sem og nálægt dvalarrými þjónustustu- og hjúkrunarstofnana.
Í reglugerð er fjallað um hávaða frá framkvæmdum en markmið reglugerðar um hávaða er að koma í veg fyrir hann eða draga úr skaðlegum áhrifum. Þar segir að við allar framkvæmdir skuli þess sérstaklega gætt að valda sem minnstu ónæði vegna hávaða. Jafnframt er kveðið á um að mönnum beri skylda til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir heilsuspillandi hávaða og takmarka ónæði.
Ennfremur eru framkvæmdaaðilum sett tímamörk um hvenær sólarhrings er leyfilegt að vinna að háværum framkvæmdum við íbúðasvæði og dvalarrými. Eins og fram kemur í töflu hér að neðan má ekki hefja háværar framkvæmdir fyrr en kl. 07:00 á virkum dögum og kl. 10:00 um helgar. Þeim verður að vera lokið kl. 21:00 á virkum dögum og kl. 19:00 um helgar. Ef um sérstaklega hávaðasamar framkvæmdir er að ræða mega þær hefjast kl. 07:00 á virkum dögum og verður þá að vera lokið kl. 19:00. Sérstaklega hávaðasamar framkvæmdir eru óleyfilegar um helgar.
Tafla: Mörk fyrir hávaða vegna framkvæmda
Framkvæmdir nærri íbúðasvæði eða dvalarrýmum þjónustustofnana þar sem sjúklingar eða vistmenn dvelja yfir lengri tíma.
Framkvæmdir | Dagar | Upphaf framkvæmda | Lok framkvæmda |
|---|---|---|---|
| Háværar | Virkir | 07:00 | 21:00 |
| Helgar og almennir frídagar | 10:00 | 19:00 | |
| Sérstaklega hávaðasamar | Virkir | 07:00 | 19:00 |
| Helgar og almennir frídagar | Ekki heimilar | - | |
Tilkynningarskylda
Sérstök ákvæði gilda um tilkynningarskyldu í byggð. Háværar framkvæmdir (byggingar, gröftur, sprengingar og gatnagerð) á íbúðasvæðum eða í nágrenni þeirra, við skóla og dvalarrými þjónustustofnana og hjúkrunarstofnana skal framkvæmdaraðili kynna fyrir íbúum nærliggjandi svæða, það er fyrirhugaðar framkvæmdir, umfang þeirra og fleira. Sérstaklega þarf að greina frá tímasetningum þeirra athafna sem eru sérstaklega til þess fallnir að valda ónæði, svo sem meitlun og sprengingar.
Ef framkvæmdaraðili brýtur í bága við ofangreind ákvæði og fylgir ekki tilmælum eftirlitsaðila getur eftirlitsaðili, sem er heilbrigðiseftirlit viðkomandi sveitarfélags gripið til aðgerða eins og áminnt framkvæmdaraðila, stöðvað eða takmarkað viðkomandi starfsemi eða lagt á dagsektir, allt að 500.000 kr. á dag, uns úr hefur verið bætt.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





