Brennisteinsvetni (H₂S)
Flestir þekkja hveralykt. Hveralykt stafar af gastegundinni brennisteinsvetni (H₂S) sem kemur upp með heitri gufu á jarðhitasvæðum. Lyktin finnst einnig af hitaveituvatni á svæðum þar sem örlitlu magni af brennisteinsvetni er bætt í vatnið til að eyða uppleystu súrefni sem myndi annars tæra vatnsleiðslur.
Síðustu ár hefur brennisteinsvetni í andrúmslofti á Íslandi aukist mikið, einkum vegna aukinnar nýtingar á jarðhita. Losun brennisteinsvetnis frá jarðhitavirkjunum mælist nú í miklu magni og er orðin stærsti hluti losunar brennisteinssambanda út í andrúmsloftið.
Áhrif brennisteinsvetnis á heilsu
Í miklum styrk er brennisteinsvetni skaðlegt heilsu. Það eru helst augu, lungu og öndunarvegur sem eru viðkvæm. Lægsti styrkur sem talinn er valda skaða er um 15.000 míkrógrömm í rúmmetra, en það er meira en 100 sinnum meira en sá styrkur sem mest hefur mælst í Reykjavík.
Umhverfismörk
Umhverfisráðherra gaf út reglugerð nr. 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmsloftinu sem tók gildi í júlí 2010. Með henni voru sett heilsuverndarmörk brennisteinsvetnis á Íslandi, 50 µg/m³ að meðaltali miðað við 24 klukkustunda tímabil.
Markmið reglugerðarinnar er að lágmarka loftmengun af völdum brennisteinsvetnis, setja umhverfismörk fyrir styrk þess í andrúmslofti sem miða að því að fyrirbyggja eða draga úr skaðlegum áhrifum á heilbrigði manna og umhverfið í heild, og tryggja nægilegar mælingar á styrk brennisteinsvetnis og miðla upplýsingum um þær til almennings.
Heilsuverndarmörk sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur gefið út eru 150 µg/m³.
Hveralykt
Margir finna lykt af brennisteinsvetni þótt styrkur þess sé mjög lítill. Í Kaliforníu hafa umhverfismörk verið miðuð við næmi fólks fyrir lykt. Þar eru mörkin 42 míkrógrömm í rúmmetra miðað við klukkustundarmeðaltal, en rannsóknir sýna að við þann styrk finni um 80% almennings lyktina.
Mælingar á brennisteinsvetni í Reykjavík
Í febrúar 2006 hóf Umhverfissvið Reykjavíkur stöðugar mælingar á brennisteinsvetni í andrúmslofti í Reykjavík. Mælt er í mælistöð við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar. Mælingarnar hófust meðal annars til að fylgjast með áhrifum jarðhitavirkjana á loftgæði í höfuðborginni.
Jarðhitavirkjanir í nágrenni Reykjavíkur
Í nágrenni Reykjavíkur eru Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun, þar sem heit gufa er notuð til rafmagnsframleiðslu og upphitunar vatns. Með gufunni kemur brennisteinsvetni sem sleppur út í andrúmsloftið.
Hellisheiðarvirkjun var gangsett haustið 2006. Mælingar sýna að á svipuðum tíma jókst styrkur brennisteinsvetnis í andrúmslofti borgarinnar. Mælingar á Grensásvegi árið 2006 sýndu einnig að styrkurinn er að jafnaði hæstur í austlægum og suðaustlægum vindáttum, sem standa af jarðhitavirkjununum.
Frá febrúar 2006 til miðs febrúar 2007 fór styrkur brennisteinsvetnis í Reykjavík 48 sinnum yfir umhverfismörk Kaliforníu, þar af 45 sinnum eftir 1. september 2006. Því hefur meira borið á hveralykt í höfuðborginni eftir að Hellisheiðarvirkjun var gangsett.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins






