Loftgæðaupplýsingakerfi
Umhverfisstofnun, forveri Umhverfis- og orkustofnunar, festi kaup á loftgæðaupplýsingakerfinu Airviro, sem auðveldar gagnasöfnun og rekstur loftgæðamælistöðva á landinu. Kerfið var þróað af Sænsku veðurstofunni (SMHI) og verkfræðistofunni Apertum. Það er samþætt kerfi sem notað er til að vinna með gögn í formi tímaraða (loftmengunarmælingar), skrá uppsprettur loftmengandi efna og gera loftdreifilíkön. Kerfið hefur verið í stöðugri þróun síðan 1990 og er notað í fjölda landa þar sem loftgæði eru mæld.
Hvað gerir Airviro?
Airviro býður upp á marga möguleika í notkun og miðlun loftgæðagagna, til dæmis:
- Auðveldar rekstur og eftirlit með loftgæðamælistöðvum og sendir viðeigandi aðilum upplýsingar, til dæmis ef stöð verður rafmagnslaus eða bilar.
- Fylgist með og sendir tilkynningar til viðeigandi aðila ef loftmengunarefni fara yfir ákveðin mörk.
- Auðveldar yfirferð á gögnum sem skilað er árlega til Umhverfisstofnunar Evrópu samkvæmt tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins um mælingar á loftgæðum.
- Geymir öll loftgæðagögn í einum gagnagrunni, sem auðveldar aðgengi, notkun og miðlun gagnanna.
- Kortleggur losun loftmengandi efna og gerir loftdreifilíkön fyrir þau efni.
- Spáir fyrir um styrk loftmengandi efna í andrúmslofti í þéttbýli að minnsta kosti tvo daga fram í tímann.
Mælingar frá loftgæðamælistöðvum á Íslandi streyma inn í Airviro í nær rauntíma og eru birtar á loftgæðavefnum loftgæði.is.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins






