
Ársskýrsla loftgæða 2024
Loftgæði á Íslandi árið 2024
Formáli
Þessi ársskýrsla er nú gefin út í áttunda skiptið en henni fylgir samantektin „Loftgæði á Íslandi – Umhverfisvísar, vöktun og uppsprettur“. Í fylgiritinu er farið almennt í loftgæði á Íslandi, loftmengandi efni sem umhverfisvísa, uppsprettur loftmengunar á Íslandi auk vöktunar á loftgæðum. Loftgæðamælingar í rauntíma má sjá á síðunni loftgæði.is.
Í ársskýrslunni er farið yfir mengunarmælingar frá mælistöðvum loftgæða á Íslandi og mælingar settar í samhengi við íslenskar reglugerðir um loftgæði. Gögn um loftgæði eru fengin úr gagnagrunni Airviro og hafa verið settar fram í formi mynda og tafla.
Mikilvægt er að vekja athygli á því að við reglulega vinnu og yfirferð á loftgæðagögnum er möguleiki á að einhverjar upplýsingar uppfærist milli ára sem gæti leitt til þess að tölulegar upplýsingar breytist í kjölfarið. Vert er að hafa þetta í huga þegar ný ársskýrsla er birt en nýlegasta skýrslan mun vera talin rétt hverju sinni.
Tafla 1 - Heilsuverndarmörk helstu loftmengunarefna á Íslandi skv. reglugerðum.
| Loftmengunarefni | Tímabil mælinga | Heilsuverndarmörk | Fjöldi leyfilegra skipta yfir mörkum |
|---|---|---|---|
| Gróft svifryk (PM₁₀) | Sólarhringsmeðaltal | 50 μg/m³ | 35 skipti |
| Gróft svifryk (PM₁₀) | Ársmeðaltal | 40 μg/m³ | |
| Fínt svifryk (PM₂,₅) | Ársmeðaltal | 20 μg/m³ | |
| Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂) | Klukkustundarmeðaltal | 200 μg/m³ | 18 skipti |
| Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂) | Sólarhringsmeðaltal | 75 μg/m³ | 7 skipti |
| Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂) | Ársmeðaltal | 40 μg/m³ | |
| Ósón (O₃) | Hæsta 8-klst. hlaupandi meðaltal | 120 μg/m³ | |
| Brennisteinsdíoxíð (SO₂) | Klukkustundarmeðaltal | 350 μg/m³ | 24 skipti |
| Brennisteinsdíoxíð (SO₂) | Sólarhringsmeðaltal | 125 μg/m³ | 3 skipti |
| Brennisteinsvetni (H₂S) | Hlaupandi 24-klst. meðaltal | 50 μg/m³ | 3 skipti |
| Brennisteinsvetni (H₂S) | Ársmeðaltal | 5 μg/m³ | |
| Blý | Ársmeðaltal | 0,5 μg/m³ | |
| Arsen | Ársmeðaltal | 6 ng/m³ | |
| Kadmíum | Ársmeðaltal | 5 ng/m³ | |
| Nikkel | Ársmeðaltal | 20 ng/m³ | |
| Bensó[a]pýren | Ársmeðaltal | 1 ng/m³ |
Samantekt
Árið 2024 mældust loftgæði á Íslandi almennt mjög góð. Undantekning var á fáeinum svæðum þar sem var vart við mengun frá eldgosum. Aðeins einn mælistaður fór þó yfir heilsuverndarmörk brennisteinsdíoxíðs (SO₂), Hafnir á Reykjanesi, en þar fór styrkur SO₂ bæði yfir leyfilegan fjölda skipta klukkustundar- og sólarhringsmeðaltalsmarka. Auk þess fór ársmeðaltalsstyrkur brennisteinsvetnis (H₂S) yfir mörk í Hveragerði. Í töflu 2 má sjá samantekt á stöðum þar sem loftmengun fór yfir heilsuverndarmörk oftar en leyfilegt er skv. reglugerðum.
Tafla 2 - Staðir þar sem loftmengun fór yfir heilsuverndarmörk oftar en leyfilegt er árið 2024
| Staðsetning | Efni | Meðaltími | Mörk [μg/m³] | Hversu oft yfir mörkum? | Fjöldi leyfilegra skipta yfir mörkum |
|---|---|---|---|---|---|
| Hafnir | Brennisteinsdíoxíð (SO₂) | 1-klst | 350 | 29 skipti | 24 |
| Hafnir | Brennisteinsdíoxíð (SO₂) | 24-klst | 125 | 5 skipti | 3 |
| Hveragerði | Brennisteinsvetni (H₂S) | Ár | 5 | Yfir ársmeðaltali (5,4 μg/m³) | 0 |
Gróft svifryk (PM₁₀) 2024
Gróft svifryk (PM₁₀) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024. Á nokkrum stöðum fór sólarhringsmeðaltal yfir mörk en þó ekki fleiri skipti en leyfilegt er samkvæmt reglugerðum. Ástæður þess að gróft svifryk fór yfir mörk á þeim stöðum sem það gerðist eru ýmist flugeldar, umferð eða sandfok. Heilsuverndarmörk PM₁₀ má sjá í töflu 1.
- Hæsta ársmeðaltal: Grensásvegur, Reykjavík (13,0 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Grensásvegur, Reykjavík (153,5 μg/m³)
- Flest skipti yfir sólarhringsmörkum: Strandgata, Akureyri (8 skipti)
Fínt svifryk (PM₂,₅) 2024
Fínt svifryk (PM₂,₅) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024. Heilsuverndarmörk PM₂,₅ má sjá í töflu 1.
- Hæsta ársmeðaltal: Kríuvarða, Grundartanga (4,9 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Dalsmári, Kópavogi (100,9 μg/m³)
Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂) 2024
Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024. Heilsuverndarmörk NO₂ má sjá í töflu 1.
- Hæsta ársmeðaltal: Strandgata, Akureyri (18,2 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Strandgata, Akureyri (71,1 μg/m³)
- Flest skipti yfir sólarhringsmörkum: Fór aldrei yfir mörk
- Hæsta klukkustundarmeðaltal: Strandgata, Akureyri (185,6 μg/m³)
- Flest skipti yfir klukkustundarmörkum: Fór aldrei yfir mörk
Brennisteinsdíoxíð (SO₂) 2024
Sökum eldgosa var brennisteinsdíoxíð (SO₂) yfir sólarhrings- og klukkustundarmörkum nokkur skipti árið 2024 en fór þó aðeins yfir leyfilegan fjölda skipta yfir mörkum í Höfnum. Þar fór styrkur SO₂ yfir fjölda leyfilegra skipta 5 sinnum fyrir sólarhringsmörk og 29 sinnum fyrir klukkustundarmörk. Heilsuverndarmörk SO₂ má sjá í töflu 1.
- Hæsta ársmeðaltal: Kríuvarða, Grundartanga (7,3 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Hafnir (379,2 μg/m³)
- Flest skipti yfir sólarhringsmörkum: Hafnir (5 skipti)
- Hæsta klukkustundarmeðaltal: Hafnir (1742,4 μg/m³)
- Flest skipti yfir klukkustundarmörkum: Hafnir (29 skipti)
Brennisteinsvetni (H₂S) 2024
Brennisteinsvetni (H₂S) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024
utan Hveragerðis en þar var ársmeðaltalið yfir mörkum sökum jarðvarmavirkjana í
nágrenninu. Heilsuverndarmörk H₂S má sjá í töflu 1.
- Hæsta ársmeðaltal: Hveragerði (5,4 μg/m³)
- Hæsta hlaupandi 24-klst. meðaltal: Norðlingaholt, Reykjavík (81,5 μg/m³)
- Flest skipti yfir 24-klst. meðaltalsmörkum: Grindavík; Norðlingaholt, Reykjavík; Hveragerði; Grensásvegur, Reykjavík; Laugarnes, Reykjavík (allt 1 skipti hver stöð)
Loftgæði á Íslandi 2024
Gróft svifryk (PM₁₀)
Gróft svifryk (PM₁₀) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024. Heilsuverndarmörk PM₁₀ eru 40 μg/m³ fyrir ársmeðaltal efnisins og 50 μg/m³ fyrir sólarhringsmeðaltal þess og leyfilegur fjöldi daga á ári yfir heilsuverndarmörkum eru 35 skipti fyrir sólarhringsmeðaltalið. Í töflu 3 má sjá ársmeðaltalsstyrk PM₁₀, hæsta sólarhringsmeðaltal og fjölda skipta sem efnið fór yfir heilsuverndarmörk á Íslandi árið 2024.
- Hæsta ársmeðaltal: Grensásvegur, Reykjavík (13,0 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Grensásvegur, Reykjavík (153,5 μg/m³)
- Flest skipti yfir sólarhringsmörkum: Strandgata, Akureyri (8 skipti)
Tafla 3 – Ársmeðaltalsstyrkur PM₁₀, hæsta sólarhringsmeðaltal og fjöldi skipta yfir mörkum árið 2024.
| Staðsetning | Ársmeðaltal [µg/m³] | Hæsta sólarhringsmeðaltal [µg/m³] | Fjöldi skipta yfir sólarhringsmörkum |
|---|---|---|---|
| Dalsmári, Kópavogi | 11,6 | 114,7 | 3 |
| Norðurhella, Hafnarfirði | 8,4 | 43,9 | 0 |
| Garðaholt, Garðabæ | 8,2 | 50,2 | 1 |
| Hörðuvallaskóli, Kópavogi | 7,8 | 33,2 | 0 |
| Kríuvarða, Grundartanga | 5,7 | 27,9 | 0 |
| Gröf, Grundartanga | 6,1 | 26,2 | 0 |
| Héðinsvík, Húsavík | 3,4 | 28,7 | 0 |
| Húsavíkurleiti, Húsavík | 6,2 | 46,5 | 0 |
| Hvaleyrarholt, Hafnarfirði* | |||
| Strandgata, Akureyri | 11,1 | 109,5 | 8 |
| Grensásvegur, Reykjavík | 13,0 | 153,5 | 4 |
| Húsdýragarðurinn, Reykjavík | 11,0 | 128,5 | 2 |
| Laugarnes, Reykjavík | 9,6 | 98,9 | 2 |
*Ónægileg gögn voru fyrir þessa stöð árið 2024 vegna bilana í mæli (undir 75% tímans).
Stöðvarnar við Hvaleyrarholt, Grundartanga og Húsavík eru í grennd við iðnað en þær hafa verið staðsettar þar sem hluti af vöktunaráætlun fyrirtækjanna. Vegna bilana í mæli eru ekki til PM₁₀ gögn fyrir Hvaleyrarholt fyrir árið 2024. Á mynd 1 eru gröf fyrir sólarhringsmeðaltalsstyrk grófs svifryks árið 2024.
Mynd 1 - Sólarhringsmeðaltalsstyrkur PM₁₀ á árinu 2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir sólarhringsstyrk efnisins (50 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Á mynd 2 má sjá fjölda daga þar sem styrkur PM₁₀ fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk á árinu 2024. Leyfilegt er að fara yfir mörkin 35 sinnum á ári fyrir hverja stöð.
Mynd 2 - Fjöldi daga þar sem styrkur PM₁₀ fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk á árinu 2024.
Í töflu 4 má sjá ástæður þess að PM₁₀ fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk árið 2024. Ástæður má ýmist rekja til flugelda, umferðar eða sandfoks.
Tafla 4 - Dagar þar sem styrkur PM₁₀ fór yfir sólarhrings heilsuverndarmörk (50 μg/m³) og uppspretta mengunar.
| Staður | Dags. | Styrkur [µg/m³] | Uppspretta | |
|---|---|---|---|---|
| Grensásvegur, Reykjavík | 01.01.24 | 153,3 | Flugeldar | |
| 11.03.24 | 61,8 | Umferð | ||
| 23.04.24 | 60,7 | Umferð | ||
| 29.11.24 | 95,7 | Sandfok | ||
| Húsdýragarðurinn, Reykjavík | 01.01.24 | 128,5 | Flugeldar | |
| 29.11.24 | 107,0 | Sandfok | ||
| Garðaholt, Garðabæ | 01.01.24 | 50,2 | Flugeldar | |
| Dalsmári, Kópavogi | 01.01.24 | 114,7 | Flugeldar | |
| 29.02.24 | 52,6 | Umferð | ||
| 29.11.24 | 89,1 | Sandfok | ||
| Strandgata, Akureyri | 15.01.24 | 91,3 | Umferð | |
| 10.03.24 | 70,7 | Umferð | ||
| 20.03.24 | 79,0 | Umferð | ||
| 19.04.24 | 59,4 | Umferð | ||
| 20.04.24 | 51,5 | Umferð | ||
| 13.11.24 | 93,3 | Sandfok | ||
| 10.12.24 | 109,5 | Umferð | ||
| 24.12.24 | 56,7 | Sandfok | ||
| Laugarnes, Reykjavík | 01.01.24 | 98,9 | Flugeldar | |
| 29.11.24 | 69,1 | Sandfok |
Eitt af markmiðum "Aðgerðaráætlunar í loftgæðum á Íslandi 2018-2029 – Hreint loft til framtíðar" er að fækka fjölda skipta sem svifryk fer yfir heilsuverndarmörk af völdum umferðar niður í núll skipti fyrir árslok 2029.
Sprengingu flugelda fylgir svifryk. Á mynd 3 má sjá mældan styrk svifryks á hverjum klukkutíma frá hádegi 31. desember 2023 til hádegis 1. janúar 2024.
Mynd 3 - Styrkur svifryks í klst. tímaupplausn frá hádegi 31. desember 2023 til hádegis 1. janúar 2024
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Þróun ársmeðaltalsstyrks PM₁₀ árin 1995-2024 má sjá á mynd 4. Þar sést að styrkur PM₁₀ hefur að jafnaði farið lækkandi á þeim mælistöðvum þar sem efnið er mælt yfir þetta tímabil eða haldist frekar lágur og stöðugur. Meginorsök lækkunarinnar er talin vera breytt veðurfar, einkum aukin úrkoma og vindur en með auknum vindi eykst jafnan blöndun og þynning loftmengunarefna í andrúmslofti.
Mynd 4 - Þróun ársmeðaltalsstyrks grófs svifryks (PM₁₀) árin 1995-2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir ársmeðaltalsstyrk efnisins (40 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Minni notkun nagladekkja hefur dregið úr sliti á götum sem leiðir til minni svifryksmengunar. Að auki má nefna að töluverð rykmengun getur fylgt byggingu og niðurrifi mannvirkja og jarðvegur getur borist út í gatnakerfið á dekkjum vörubíla sem aka út af framkvæmdasvæðum sem að lokum þyrlast upp þegar þurrt verður.
Mælistöðvarnar við Grensásveg í Reykjavík og Strandgötu á Akureyri eru við umferðargötur og því má vænta hærri styrks PM₁₀ (og annarrar umferðartengdrar loftmengunar) þar samanborið við íbúabyggð eða utan höfuðborgarinnar.
Fram að reglugerðarbreytingu árið 2016 voru heilsuverndarmörk fyrir ársmeðaltal PM₁₀ 20 μg/m³ en með reglugerð nr. 920/2016 voru þessi mörk hækkuð upp í 40 μg/m³ til samræmis við Evrópureglugerðir.
Sjá nánari umfjöllun um heilsuverndarmörk, uppsprettur PM₁₀ og fleira í skjalinu „Loftgæði á Íslandi – Umhverfisvísar, vöktun og uppsprettur".
Fínt svifryk (PM₂,₅)
Fínt svifryk (PM₂,₅) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024. Heilsuverndarmörk fyrir ársmeðaltal PM₂,₅ eru 20 μg/m³. Samkvæmt reglugerðum eru ekki sett mörk fyrir sólarhringsmeðtaltal PM₂,₅. Í töflu 5 má sjá ársmeðaltalsstyrk PM₂,₅ og hæsta sólarhringsmeðaltal efnisins árið 2024.
- Hæsta ársmeðaltal: Kríuvarða, Grundartanga (4,9 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Dalsmári, Kópavogi (100,9 μg/m³)
Tafla 5 - Ársmeðaltalsstyrkur og hæsta sólarhringsmeðaltal fíns svifryks árið 2024.
| Staðsetning | Ársmeðaltal [µg/m³] | Hæsta sólarhringsmeðaltal [µg/m³] |
|---|---|---|
| Dalsmári, Kópavogi | 4,0 | 100,9 |
| Norðurhella, Hafnarfirði | 4,6 | 17,7 |
| Garðaholt, Garðabæ | 3,5 | 42,9 |
| Hörðuvallaskóli, Kópavogi | 2,8 | 27,0 |
| Kríuvarða, Grundartanga | 4,9 | 20,4 |
| Gröf, Grundartanga* | ||
| Héðinsvík, Húsavík | 3,6 | 18,9 |
| Húsavíkurleiti, Húsavík* | ||
| Hvaleyrarholt, Hafnarfirði | 4,0 | 33,5 |
| Grensásvegur, Reykjavík* | ||
| Húsdýragarðurinn, Reykjavík | 4,0 | 70,2 |
| Laugarnes, Reykjavík | 3,7 | 55,5 |
*Ónægileg gögn voru fyrir þessa stöð árið 2024 vegna bilana í mæli (undir 75% tímans).
Stöðvarnar við Hvaleyrarholt, Grundartanga og Húsavík eru í grennd við iðnað en þær hafa verið staðsettar þar sem hluti af vöktunaráætlun fyrirtækjanna. Vegna bilana í svifryksmælum eru ekki til gögn fyrir Gröf á Grundartanga, Húsavíkurleiti á Húsavík og Grensásveg í Reykjavík árið 2024. Á mynd 5 er graf fyrir sólarhringsmeðaltalsstyrk fíns svifryks árið 2024. Samkvæmt reglugerðum eru engin sólarhringsheilsuverndarmörk fyrir PM₂,₅.
Mynd 5 - Sólarhringsmeðaltalsstyrkur PM₂,₅ á árinu 2024.
Engin heilsuverndarmörk eru sólarhringsmeðaltal PM₂,₅
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Þróun ársmeðaltalsstyrks PM₂,₅ á mælistöðvum landsins frá árinu 2009-2024 má sjá á mynd 6. Þar sést að styrkur PM₂,₅ hefur haldist nokkuð stöðugur á stöðvum þar sem efnið er mælt frá árinu 2009.
Mynd 6 - Þróun ársmeðaltalsstyrks PM₂,₅ árin 2009-2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir ársmeðaltalsstyrk efnisins (20 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂)
Köfnunarefnisdíoxíð (NO₂) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024. Heilsuverndarmörk NO₂ eru 40 μg/m³ fyrir ársmeðaltal efnisins, 75 μg/m³ fyrir sólarhringsmeðaltal og 200 μg/m³ fyrir klukkustundarmeðaltal. Fara má yfir sólarhringsmörk 7 sinnum og klukkustundarmörk 18 sinnum á ári. Í töflu 6 má sjá ársmeðaltalsstyrk, hæsta sólarhrings- og klukkustundarmeðaltalsstyrk og fjölda skipta sem NO₂ fór yfir heilsuverndarmörk árið 2024.
- Hæsta ársmeðaltal: Strandgata, Akureyri (18,2 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Strandgata, Akureyri (71,1 μg/m³)
- Flest skipti yfir sólarhringsmörkum: Fór aldrei yfir mörk
- Hæsta klukkustundarmeðaltal: Strandgata, Akureyri (185,6 μg/m³)
- Flest skipti yfir klukkustundarmörkum: Fór aldrei yfir mörk
Tafla 6 - Ársmeðaltalsstyrkur, hæsta sólarhrings- og klst. meðaltal NO₂ og fjöldi skipta yfir mörkum árið 2024.
| Staðsetning | Ársmeðaltal [µg/m³] | Hæsta sólarhringsmeðaltal [µg/m³] | Hæsta klst. meðaltal [µg/m³] | Fjöldi skipta yfir sólarhringsmörkum | Fjöldi skipta yfir klst. mörkum |
|---|---|---|---|---|---|
| Dalsmári, Kópavogi | 8,2 | 44,9 | 96,8 | 0 | 0 |
| Norðurhella, Hafnarfirði | 6,2 | 22,5 | 59,8 | 0 | 0 |
| Hörðuvallaskóli, Kópavogi | 4,3 | 25,5 | 82,9 | 0 | 0 |
| Kríuvarða, Grundartanga* | |||||
| Gröf, Grundartanga | 1,7 | 9,4 | 51,6 | 0 | 0 |
| Héðinsvík, Húsavík | 2,1 | 14,6 | 65,8 | 0 | 0 |
| Húsavíkurleiti, Húsavík | 2,0 | 13,3 | 48,3 | 0 | 0 |
| Hvaleyrarholt, Hafnarfirði | 3,7 | 20,9 | 84,7 | 0 | 0 |
| Strandgata, Akureyri | 18,2 | 71,1 | 185,6 | 0 | 0 |
| Grensásvegur, Reykjavík | 17,6 | 58,8 | 164,0 | 0 | 0 |
| Húsdýragarðurinn, Reykjavík | 3,9 | 20,7 | 59,3 | 0 | 0 |
| Laugarnes, Reykjavík | 4,8 | 36,1 | 76,9 | 0 | 0 |
*Ónægileg gögn voru fyrir þessa stöð árið 2024 vegna bilana í mæli (undir 75% tímans).
Stöðvarnar við Hvaleyrarholt, Grundartanga og Húsavík eru í grennd við iðnað en þær hafa verið staðsettar þar sem hluti af vöktunaráætlun fyrirtækja. Styrkur NO₂ er nokkuð lægri á þeim stöðvum samanborið við aðrar mælistöðvar sem eru nær stórum umferðargötum en helsta uppspretta NO₂ mengunar í þéttbýli er bruni jarðefnaeldsneytis frá umferð. Vegna bilana í mæli eru ekki til NO₂ gögn fyrir Kríuvörðu árið 2024. Á mynd 7 er graf fyrir sólarhringsmeðaltalsstyrk NO₂ árið 2024.
Mynd 7 - Sólarhringsmeðaltalsstyrkur NO₂ á árinu 2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir sólarhringsstyrk efnisins (50 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Á mynd 8 má sjá fjölda daga þar sem styrkur NO₂ fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk á árinu 2024. Leyfilegt er að fara yfir mörkin 7 sinnum á ári fyrir hverja stöð.
Mynd 8 - Fjöldi daga þar sem styrkur NO₂ fór yfir sólarhringsheilsuverndarsmörk á árinu 2024.
Vert er að ítreka að á mælistöðvum við umferðargötur má vænta hærri styrks NO₂ (og annarrar umferðartengdrar loftmengunar) samanborið við íbúabyggð eða á iðnaðarsvæðum en ólíklegt er að sá iðnaður sem er stundaður á Íslandi losi frá sér mikið magn NO₂. Á mynd 9 má sjá meðaltalsstyrk NO₂ árið 2024 hlutaðan niður á klst. sólarhringsins og skipt eftir árstíð og því hvort um helgi eða virkan dag er að ræða. Þar sést að styrkur NO₂ er hæstur við umferðargötur á virkum dögum um vetur, en almennt mælist styrkur NO₂ hæstur í froststillum að vetri.
Mynd 9 - Meðaltalsstyrkur NO₂ árið 2024 á hverri klst. sólarhrings eftir árstíð og gerð dags.
Hægt er að velja árstíð, gerð dags og svæði og stöð á stikunni til hægri.
Þróun ársmeðaltalsstyrks NO₂ á mælistöðvum landsins frá árinu 1995-2024 má sjá á mynd 10.
Mynd 10 - Þróun ársmeðaltalsstyrks NO₂ árin 1995-2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir ársmeðaltalsstyrk efnisins (40 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Sjá nánari umfjöllun um heilsuverndarmörk, uppsprettur NO₂ og fleira á eftirfarandi hlekk:
„Loftgæði á Íslandi – Umhverfisvísar, vöktun og uppsprettur“.
Brennisteinsdíoxíð (SO₂)
Sökum eldgosa var brennisteinsdíoxíð (SO₂) yfir sólarhrings- og klukkustundarmörkum nokkur skipti en fór þó aðeins yfir leyfilegan fjölda skipta yfir mörkum í Höfnum. Þar fór styrkur SO₂ yfir fjölda leyfilegra skipta 5 sinnum fyrir sólarhringsmörk og 29 sinnum fyrir klukkustundarmörk. Heilsuverndarmörk SO₂ eru 125 μg/m³ fyrir sólarhringsmeðaltal og 350 μg/m³ fyrir klukkustundarmeðaltal. Samkvæmt reglugerðum eru ekki sett mörk fyrir ársmeðaltal efnisins. Fara má yfir sólarhringsmörk 3 sinnum og klukkustundarmörk 24 sinnum á ári. Í töflu 7 má sjá ársmeðaltalsstyrk, hæsta sólarhrings- og klukkustundarmeðaltalsstyrk og fjölda skipta sem SO₂ fór yfir heilsuverndarmörk árið 2024.
- Hæsta ársmeðaltal: Kríuvarða, Grundartanga (7,3 μg/m³)
- Hæsta sólarhringsmeðaltal: Hafnir (379,2 μg/m³)
- Flest skipti yfir sólarhringsmörkum: Hafnir (5 skipti)
- Hæsta klukkustundarmeðaltal: Hafnir (1742,4 μg/m³)
- Flest skipti yfir klukkustundarmörkum: Hafnir (29 skipti)
Tafla 7 - Ársmeðaltalsstyrkur og hæsta sólarhrings- og klst. meðaltal SO₂ og fjöldi skipta yfir mörkum árið 2024.
| Staðsetning | Ársmeðaltal [µg/m³] | Hæsta sólarhringsmeðaltal [µg/m³] | Hæsta klst. meðaltal [µg/m³] | Fjöldi skipta yfir sólarhringsmörkum | Fjöldi skipta yfir klst. mörkum |
|---|---|---|---|---|---|
| Hjallaleyra, Reyðarfirði | 2,0 | 26,2 | 151,6 | 0 | 0 |
| Ljósá, Reyðarfirði | 3,1 | 36,7 | 171,6 | 0 | 0 |
| Hólmar, Reyðarfirði* | |||||
| Dalsmári, Kópavogi | 2,7 | 81,0 | 481,8 | 0 | 1 |
| Norðurhella, Hafnarfirði | 3,1 | 60,4 | 298,5 | 0 | 0 |
| Garðaholt, Garðabæ | 2,8 | 96,2 | 405,7 | 0 | 1 |
| Hörðuvallaskóli, Kópavogi | 2,7 | 101,9 | 375,4 | 0 | 1 |
| Kríuvarða, Grundartanga | 7,3 | 123,8 | 350,5 | 0 | 1 |
| Gröf, Grundartanga | 4,2 | 92,4 | 481,3 | 0 | 1 |
| Melahverfi, Grundartanga* | |||||
| Héðinsvík, Húsavík | 2,2 | 35,7 | 178,0 | 0 | 0 |
| Húsavíkurleiti, Húsavík* | |||||
| Hvaleyrarholt, Hafnarfirði | 1,7 | 92,5 | 327,5 | 0 | 0 |
| Lónakot, Hafnarfirði | 0,3 | 23,3 | 94,2 | 0 | 0 |
| Strandgata, Akureyri | 2,5 | 161,4 | 480,1 | 1 | 4 |
| Grensásvegur, Reykjavík | 2,2 | 77,7 | 405,7 | 0 | 1 |
| Laugarnes, Reykjavík | 1,7 | 61,6 | 228,2 | 0 | 0 |
| Garður | 2,4 | 45,7 | 267,3 | 0 | 0 |
| Ásbrú | 3,2 | 92,0 | 1317,7 | 0 | 13 |
| Sandgerði | 2,8 | 76,8 | 739,2 | 0 | 4 |
| Hafnir | 5,9 | 379,2 | 1742,4 | 5 | 29 |
| Keflavík | 1,9 | 51,5 | 597,1 | 0 | 1 |
| Njarðvík | 1,3 | 21,8 | 104,3 | 0 | 0 |
| Vogar* | |||||
| Selfoss | 1,2 | 47,8 | 366,3 | 0 | 1 |
| Kirkjubæjarklaustur | 0,9 | 46,4 | 319,2 | 0 | 0 |
*Ónægileg gögn voru fyrir þessa stöð árið 2024 vegna bilana í mæli (undir 75% tímans).
Stöðvarnar við Hvaleyrarholt, Lónakot, Grundartanga, Húsavík og Reyðarfjörð eru í grennd við iðnað en þær hafa verið staðsettar þar sem hluti af vöktunaráætlun fyrirtækjanna. Vegna mælabilana eru ekki til SO₂ gögn fyrir Hólma, Melahverfi, Húsavíkurleiti og Voga árið 2024.
Á mynd 11 má sjá graf fyrir sólarhringsmeðaltalsstyrk SO₂ árið 2024. Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir sólarhringsstyrk efnisins.
Mynd 11 - Sólarhringsmeðaltalsstyrkur SO₂ á árinu 2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir sólarhringsstyrk efnisins (125 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Öll skipti þar sem SO₂ fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk árið 2024 má rekja til eldgosa. Á mynd 12 má sjá fjölda daga þar sem styrkur SO₂ fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk árið 2024. Leyfilegt er að fara yfir mörkin 3 sinnum á ári fyrir hverja stöð.
Mynd 12 - Fjöldi daga þar sem styrkur SO₂ fór yfir sólarhringsheilsuverndarsmörk á árinu 2024.
Á mynd 13 má sjá þróun ársmeðaltalsstyrks SO₂ á Grensásvegi frá árinu 1994 til 2024. Þar sést að SO₂ mengun hefur farið lítillega lækkandi yfir tímabilið fyrir utan eldgosaár en einu áberandi topparnir eru árin 2014 og 2021 og þá má rekja beint til eldgosa.
Mynd 13 - Þróun ársmeðaltalsstyrks SO₂ árin 1994-2024.
Engin heilsuverndarmörk eru fyrir ársmeðaltalsstyrk efnisins.
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Sjá nánari umfjöllun um heilsuverndarmörk, uppsprettur SO₂ og fleira á eftirfarandi hlekk: „Loftgæði á Íslandi – Umhverfisvísar, vöktun og uppsprettur“.
Brennisteinsvetni (H₂S)
Brennisteinsvetni (H₂S) var innan marka á öllum stöðum þar sem efnið var mælt árið 2024 utan Hveragerðis en þar var ársmeðaltalsstyrkur efnisins yfir heilsuverndarmörkum. Heilsuverndarmörk H₂S eru 5 μg/m³ fyrir ársmeðaltal efnisins og 50 μg/m³ fyrir hlaupandi 24- klukkustunda meðaltal og leyfilegt er að 24-klukkustunda hlaupandi meðaltalið fari yfir mörk 3 skipti á ári. Í töflu 8 má sjá ársmeðaltalsstyrk H₂S, hæsta hlaupandi 24-klst. meðaltal og fjölda skipta sem efnið fór yfir heilsuverndarmörk árið 2024.
- Hæsta ársmeðaltal: Hveragerði (5,4 μg/m³)
- Hæsta hlaupandi 24-klst. meðaltal: Norðlingaholt, Reykjavík (81,5 μg/m³)
- Flest skipti yfir 24-klst. meðaltalsmörkum: Grindavík; Norðlingaholt, Reykjavík; Hveragerði; Grensásvegur, Reykjavík; Laugarnes, Reykjavík (allt 1 skipti hver stöð)
Tafla 8 - Ársmeðaltalsstyrkur H₂S, hæsta 24-klst. hlaupandi meðaltal og fjöldi skipta yfir mörkum árið 2024.
| Staðsetning | Ársmeðaltal [µg/m³] | Hæsta hl. 24-klst. meðaltal [µg/m³] | Fjöldi skipta yfir hl. 24-klst. meðaltalsmörkum |
|---|---|---|---|
| Dalsmári, Kópavogi | 3,5 | 38,3 | 0 |
| Norðurhella, Hafnarfirði | 1,5 | 16,9 | 0 |
| Garðaholt, Garðabæ | 2,8 | 28,9 | 0 |
| Hörðuvallaskóli, Kópavogi | 4,0 | 38,9 | 0 |
| Grindavík | 4,2 | 59,7 | 1 |
| Reykjahlíð, Mývatni | 4,0 | 42,0 | 0 |
| Vogar, Mývatni | 2,1 | 39,2 | 0 |
| Keldurhverfi, Eyvindarst.* | |||
| Reykjaheiði, Húsavík | 1,5 | 9,6 | 0 |
| Kríuvarða, Grundartanga | 0,6 | 6,9 | 0 |
| Gröf, Grundartanga | 0,6 | 6,1 | 0 |
| Melahverfi, Grundartanga* | |||
| Norðlingaholt, Reykjavík | 3,4 | 81,5 | 1 |
| Hveragerði | 5,4 | 58,2 | 1 |
| Lækjarbotnar, Kópavogi | 2,4 | 35,4 | 0 |
| Lambhagi, Reykjavík* | |||
| Hvaleyrarholt, Hafnarfirði | 2,1 | 27,0 | 0 |
| Grensásvegur, Reykjavík | 2,6 | 56,1 | 1 |
| Laugarnes, Reykjavík | 1,6 | 66,0 | 1 |
| Garður | 1,7 | 11,4 | 0 |
| Ásbrú | 1,9 | 16,5 | 0 |
| Sandgerði | 1,6 | 14,4 | 0 |
| Hafnir | 1,7 | 9,4 | 0 |
| Keflavík | 1,4 | 10,9 | 0 |
| Njarðvík | 1,7 | 11,0 | 0 |
| Vogar* | |||
| Selfoss | 1,1 | 18,0 | 0 |
| Kirkjubæjarklaustur | 0,8 | 30,9 | 0 |
*Ónægileg gögn voru fyrir þessa stöð árið 2024 vegna bilana í mæli (undir 75% tímans).
Stöðvarnar í Grindavík, Hveragerði, Lækjarbotnum, Norðlingaholti, Lambhaga og Mývatni eru starfræktar af orkufyrirtækjum sem losa H₂S og er rekstur þessara stöðva hluti af umhverfisvöktun viðkomandi fyrirtækja.
Á mynd 14 má sjá gröf fyrir 24-klst. hlaupandi meðaltal H₂S árið 2024. Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir 24-klst. hlaupandi meðaltal efnisins (50 μg/m³).
Mynd 14 - Hlaupandi 24-klst. meðaltal H₂S árið 2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir 24-klst. hlaupandi meðaltal efnisins (50 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Ástæður þess að H₂S fór yfir heilsuverndarmörk árið 2024 má í öllum tilvikum rekja til orkuframleiðslu úr jarðvarmaorkuverum. Á mynd 15 má sjá fjölda daga þar sem styrkur H₂S fór yfir 24-klst. hlaupandi meðaltalsmörk árið 2024. Leyfilegt er að fara yfir mörkin 3 sinnum á ári fyrir hverja stöð.
Mynd 15 - Fjöldi daga þar sem styrkur H₂S fór yfir 24-klst. hlaupandi meðaltalsmörk á árinu 2024.
Á mynd 16 má sjá þróun ársmeðaltalsstyrks H₂S á Grensásvegi frá árinu 2006 til 2024. Þar sést að mældur styrkur brennisteinsvetnis hefur haldist nokkuð stöðugur yfir tímabilið þrátt fyrir aukna orkuframleiðslu í Hellisheiðarvirkjun. Líklegt er að þar spili inn í niðurdæling H₂S sem hófst árið 2014 og hefur verið stöðugt aukin síðan. Erfitt er þó að fullyrða um það enda eru mun fleiri þættir sem gætu haft þar áhrif og má þar helst nefna veðurfar en það hefur mikil áhrif á það hvernig H₂S mengun berst.
Mynd 16 - Ársmeðaltalsstyrkur H₂S á Grensásvegi frá árinu 2006 til 2024.
Rauð lína sýnir heilsuverndarmörk fyrir ársmeðaltal efnisins (5 μg/m³).
Hægt er að velja svæði og stöð á stikunni til hægri.
Almennt er styrkur H₂S hærri á veturna en sumrin en á 5. mynd í fylgiritinu „Loftgæði á Íslandi – Umhverfisvísar, vöktun og uppsprettur“ má sjá að styrkur H₂S á höfuðborgarsvæðinu er hærri í suð-, suðaustlægum vindum (u.þ.b. 90-150°) undir 3 m/s og þegar hitastig er rétt undir frostmarki.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





