Losun þungmálma
Uppsprettur þungmálma sem losna út í andrúmsloftið eru meðal annars vegasamgöngur, álframleiðsla og fiskiskip. Bókhald Umhverfis- og orkustofnunar heldur utan um eftirfarandi þungmálma:
- Blý –Pb
- Kadmín –Cd
- Kvikasilfur –Hg
- Arsen –As
- Króm –Cr
- Kopar –Cu
- Nikkel –Ni
- Selen –Se
- Sink –Zn
Blý, kadmín og kvikasilfur (Pb, Cd og Hg)
Losun á blýi (Pb), kadmíni (Cd) og kvikasilfri (Hg) á Íslandi er fyrst og fremst frá eftirfarandi uppsprettum:
- Vegasamgöngur: Vegasamgöngur eru í dag uppspretta fyrir nærri 50% af heildarlosun blýs og 20% af heildarlosun kvikasilfurs á Íslandi. Á tíunda áratug síðustu aldar var sett bann á blý í bensíni og eftir það stafar losun blýs aðallega af sliti á dekkjum og bremsum og hefur hún aukist samhliða fjölgun bifreiða. Losun kvikasilfurs hefur aukist á tímabilinu vegna aukinnar eldsneytisnotkunar.
- Álframleiðsla: Álframleiðsla er helsta uppspretta kadmínlosunar og veldur einnig losun blýs. Losunin jókst talsvert árin 2006-2008 vegna aukinnar framleiðslu og hefur haldist nokkuð stöðug síðan þá.
- Eldsvoðar: Losunin hefur haldist nokkuð stöðug yfir tímalínuna en sveiflast í takt við fjölda eldsvoða ár hvert.
- Innanlandsflug (lofttak og lending): Blýlosun verður vegna innanlandsflugs. Þessi losun er háð notkun á flugvélabensíni meðan ekki er gert ráð fyrir blýlosun við bruna á þotueldsneyti.
- Flugeldar: Ein af uppsprettum blýlosunar er flugeldanotkun. Aukningin síðan 1990 endurspeglar aukna flugeldanotkun sem er að mestu um áramót. Sjá má að losunin nær hámarki árið 2007, stuttu fyrir efnahagshrunið.
- Hitaveitur: Hitaveitur sem nýttu sorpbrennslu sem orkugjafa voru starfræktar milli 1993 og 2013 sem leiddi til töluverðrar losunar á blýi, kadmíni og kvikasilfri.
- Fiskiskip: Losun frá fiskiskipum er stór liður losunar á kvikasilfri og veldur einnig losun á kadmíni og blýi. Samdráttur í losun er að mestu vegna minni eldsneytisnotkunar fiskiflotans. Losun jókst þó á tímabilinu 1990-1996 þar sem hluti flotans sigldi óvenjulangt til veiða. Frá árinu 1996 hefur losun farið minnkandi með sveiflum sem endurspeglast í breytingum á aflamagni, fiskistofnum og öðrum náttúrulegum þáttum ásamt endurnýjun skipa og bættri orkunýtni.
- Opinn bruni á úrgangi: Helsta uppspretta kvikasilfurslosunar á 10. áratug síðustu aldar var opinn bruni á úrgangi. Einnig stuðlaði hann að töluverðri kadmínlosun. Opinn bruni viðgekkst aðallega árin 1990 til 2004.
- Bruni á sóttnæmum sjúkrahúsúrgangi: Bruni sóttnæms úrgangs er helsta uppspretta kvikasilfurslosunar á Íslandi undanfarin ár. Sóttnæmur úrgangur var brenndur í opnum bruna fram til ársins 2011, þegar sorpbrennslan Kalka hóf að taka við öllum klínískum úrgangi á Íslandi.
- Líkbrennsla: Líkbrennsla er stækkandi þáttur kvikasilfurslosunar á Íslandi samhliða auknum vinsældum hennar hér á landi.
Arsen, króm, kopar, nikkel, selen, sink (As, Cr, Cu, Ni, Se, Zn)
Losun á arseni, krómi, kopar, nikkeli, selen og sinki á Íslandi er fyrst og fremst frá eftirfarandi uppsprettum:
- Fiskiskip: Losun frá fiskiskipum er stærsti liður losunar á selen og næst stærsti liður losunar á arseni og nikkeli. Samdráttur í losun er að mestu vegna minni eldsneytisnotkunar fiskiflotans. Losun jókst þó á tímabilinu 1990-1996 þar sem hluti flotans sigldi óvenjulangt til veiða. Frá árinu 1996 hefur losun farið minnkandi með sveiflum sem endurspeglast í breytingum á aflamagni, fiskistofnum og öðrum náttúrulegum þáttum ásamt endurnýjun skipa og bættri orkunýtni. Losun arsens og nikkels dróst verulega saman er takmarkanir á notkun svartolíu á fiskiskip tók gildi árið 2020.
- Vegasamgöngur: Vegasamgöngur eru stærsti liður losunar á krómi og kopar og næst stærsti liður losunar á selen og sinki. Meirihluti losunarinnar tengist sliti á dekkjum og bremsum. Losunin hefur aukist vegna aukningu í fjölda ekinna kílómetra.
- Álframleiðsla: Álframleiðsla er stærsta uppspretta losunar á arseni, nikkeli og sinki í dag og næst stærsta uppspretta krómlosunar. Losunin jókst árið 1998 vegna nýs álvers sem þá var tekið í notkun og enn frekar árið 2006-2008 vegna stækkunar eins álvers og opnun annars. Losunin frá álframleiðslu hefur verið nokkuð stöðug frá 2008.
- Hitaveitur: Hitaveitur sem byggja á sorpbrennslu voru starfræktar milli 1993 og 2013 sem leiddi til losunar á arseni.
- Opinn bruni á úrgangi: Ein helsta uppspretta losunar á arseni og sinki árið 1990 var opinn bruni á úrgangi. Opinn bruni viðgekkst aðallega árin 1990 til 2004.
- Flugeldar: Ein af uppsprettum losunar á krómi, kopar, nikkeli og sinki er flugeldanotkun, Aukningin frá 1990 endurspeglast í aukinni flugeldanotkun, Sjá má að losunin nær hámarki árið 2007, stuttu fyrir efnahagshrunið.
- Innanlandssiglingar: Siglingar leiða til losunar á krómi, nikkeli og selen vegna eldsneytisbruna. Samdráttur í losun á undanförnum árum tengist að hluta til takmörkunum á notkun svartolíu í landhelgi Íslands.
- Steinefnaiðnaður: Losun á krómi og selen átti sér stað vegna sementsframleiðslu við bruna á kolum þar til framleiðslu var hætt árið 2012.
- Eldsvoðar: Losun á sinki hefur haldist nokkuð stöðug yfir tímalínuna en sveiflast í takt við fjölda eldsvoða ár hvert.
Losun á sinki (Zn) á Íslandi
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650
Akureyri
Rangárvellir 2, hús 8, IS-603
Egilsstaðir
Tjarnarbraut 39B, IS-700
Reykjavík
Suðurlandsbraut 24, IS-108
Selfoss
Austurvegur 20, IS-800
Gagnasöfn
Hafa samband
© UOS 2026




