Umhverfis- og loftslagsstefna

Framtíðarsýn

Umhverfis- og orkustofnun ætlar að vera til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum og halda neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi stofnunarinnar í lágmarki. Stofnunin leggur sitt af mörkum til að skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamkomalaginu sé náð og tekur þannig virkan þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar.

Stofnunin tryggir að lagalegum kröfum sem tengjast starfsemi hennar sé fylgt og vinnur að stöðugum umbótum á umhverfisstarfi stofnunarinnar. Stofnunin vinnur samkvæmt kröfum ISO 9001 og ISO 14001 um gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi og leggur þær til grundvallar í allri vinnu. Stefnt er að stofnunin verði komin formlega með ISO 14001 fyrir árslok 2025 og ISO 9001 árslok 2026.

Yfirmarkmið

Umhverfis- og orkustofnun ætlar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) á stöðugildi um 40% fyrir árið 2030 miðað við árið 2018¹. Stofnunin stefnir einnig að kolefnishlutlausri starfsemi með því að kolefnisjafna alla eftirstandandi losun frá árinu 2019.

Tenging við núverandi skuldbindingar og viðmið

Umhverfis- og loftslagsstefna stofnunarinnar tekur mið af leiðbeiningum stofnunarinnar um loftslagsstefnur opinberra aðila, skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamkomalaginu, aðgerðaráætlun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum, yfirlýsingu forstöðumanna stofnana umhverfis- og auðlindaráðuneytis um samdrátt í losun GHL og kolefnishlutleysi, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Grænum skrefum.

Gildissvið

Stefna þessi tekur til umhverfisáhrifa af innri rekstri stofnunarinnar og varðar alla starfsmenn stofnunarinnar. Umhverfis- og orkustofnun er með starfsstöðvar á 5 stöðum um land allt. Reynt er eftir fremsta megni að mæla þá umhverfisþætti sem falla undir umfang stefnunnar á öllum starfsstöðvum.

Umfang

Umhverfis- og loftslagsstefna stofnunarinnar fjallar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt leiðbeiningum um loftslagsstefnur opinberra aðila¹ en jafnframt um umhverfisáhrif stofnunarinnar í víðara samhengi. Stefnan tekur til eftirfarandi umhverfisþátta sem unnt er að fylgjast með og mæla hverju sinni og bera saman við samþykkt markmið:

Samgöngur

  • Losun GHL vegna aksturs á bifreiðum stofnunar
  • Losun GHL vegna flugferða starfsmanna innanlands
  • Losun GHL vegna flugferða starfsmanna erlendis
  • Losun GHL vegna aksturs á bílaleigu- og leigubílum
  • Fjöldi samgöngusamninga sem stofnunin gerir við starfsmenn

Orkunotkun

  • Raun rafmagns- og heitavatnsnotkun á starfsstöð í Reykjavík
  • Áætluð rafmagns- og heitavatnsnotkun á öðrum starfsstöðvum

Úrgangur

  • Losun GHL vegna lífræns úrgangs sem fellur til á öllum starfsstöðvum
  • Losun GHL vegna blandaðs úrgangs sem fellur til á öllum starfsstöðvum
  • Heildarmagn úrgangs sem fellur til á öllum starfsstöðvum
  • Magn útprentaðs skrifstofupappírs á öllum starfsstöðvum
  • Endurvinnsluhlutfall á öllum starfsstöðvum

Innkaup

  • Hlutfall umhverfisvottaðs skrifstofupappírs sem stofnunin kaupir
  • Hlutfall umhverfisvottaðrar prentþjónustu sem stofnunin kaupir
  • Magn ræsti- og hreinsiefna sem stofnunin kaupir sjálf og notuð eru á starfsstöð í Reykjavík
  • Hlutfall umhverfisvottaðra ræsti- og hreinsiefna sem stofnunin kaupir sjálf og notuð eru á starfsstöð í Reykjavík
  • Hlutfall umhverfisvottaðrar ræstiþjónustu sem stofnunin kaupir fyrir starfsstöð í Reykjavík
  • Velja umhverfisvottaða gistingu og viðburðaþjónustu þegar slíkt er mögulegt

Áherslur í umhverfis- og loftslagsmálum

  • Drögum úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna, úrgangs og orkunotkunar
  • Eflum fjarfundamenningu
  • Drögum úr úrgangsmyndun og aukum endurvinnslu
  • Hugum að orkusparnaði
  • Fræðum starfsfólk um innra umhverfisstarf og önnur umhverfismál
  • Hvetjum til aukinnar umhverfisvitundar í samfélaginu
  • Stundum umhverfisvæn innkaup
  • Fylgjum Grænum skrefum
  • Kolefnisjöfnum losun okkar með ábyrgum hætti
  • Kynnum okkur tæknilegar lausnir sem auðvelda umhverfisstarf
  • Vellíðan og velferð starfsfólks þarf að haldast í hendur við umhverfismarkmið stofnunarinnar

Eftirfylgni

Fyrir 1. apríl ár hvert er Grænt bókhald fyrra árs tekið saman og því skilað. Niðurstöður bókhaldsins eru notaðar til að móta stefnu og aðgerðir í umhverfis- og loftslagsmálum. Umhverfisráð sér um að taka bókhaldið saman í samstarfi. Umhverfis- og loftslagsstefnan er rýnd árlega af umhverfisráði og áherslur, markmið og aðgerðaráætlun uppfærð þegar niðurstöður Græns bókhalds liggja fyrir. Allar uppfærslur eru lagðar fyrir framkvæmdastjórn til samþykktar.

Niðurstöðum Græns bókhalds og árangri umhverfis- og loftslagsstefnu er miðlað til starfsmanna stofnunarinnar á innri vefum og til samfélagsins á vef Umhverfis- og orkustofnunar og í rafrænni ársskýrslu ár hvert. Einnig birtast niðurstöður Græns bókhalds á heimasíðu Grænna skrefa ásamt niðurstöðum annarra ríkisstofnana.

Stefnan samþykkt af framkvæmdastjórn 26. ágúst 2025


¹ Umhverfis- og orkustofnun er ný stofnun svo ekki liggja fyrir viðmiðunartölur aftur í tímann. Því er ákveðið að notast við losunartölur Umhverfisstofnunar frá árinu 2018 en leiðrétt fyrir augljósum breytingum á starfsemi stofnanna tveggja eins og auðið er.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800