Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Loftslagsstefna ríkisaðila

Loftslagsbreytingar af mannavöldum grafa undan skilyrðum til lífs á jörðinni. Það er því hagur bæði núlifandi og framtíðarkynslóða að draga úr áhrifum þeirra eins og mögulegt er.

Samkvæmt lögum um loftslagsmál ber Stjórnarráði Íslands, ríkisstofnunum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins að setja sér loftslagsstefnu. Stefnan skal innihalda skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) og kolefnisjöfnun starfseminnar ásamt aðgerðum svo að þeim markmiðum verði náð. Tilgangur loftslagsstefnu er að auðvelda ríkisaðilum að draga markvisst úr áhrifum vegna losunar gróðurhúsalofttegunda af starfsemi sinni og vera til fyrirmyndar með því að hafa bein og óbein áhrif á loftslagsskuldbindingar Íslands.

Í apríl 2019 var Loftslagsstefna Stjórnarráðsins samþykkt á ríkisstjórnarfundi. Umhverfis- og orkustofnun leggur hér fram leiðbeiningar um gerð og innleiðingu loftslagsstefnu fyrir ríkisstofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins. Leiðbeiningarnar byggja á Loftslagsstefnu Stjórnarráðsins.

Leiðbeiningar

Fyrstu skref

Eitt af fyrstu skrefunum í verkefninu er að velja fólk til að móta loftslagsstefnu ásamt tilheyrandi markmiðasetningu og gerð aðgerðaáætlunar. Kjörið er að biðja umhverfisráð eða teymi sem sér um umhverfismál vinnustaðarins að sjá um undirbúningsvinnuna. Ef slíkur hópur er ekki til staðar er mælt með að setja hann á laggirnar en í því er hægt að fara ýmsar leiðir. Nauðsynlegt er að hafa stuðning yfirstjórnar og gott að hafa fjölbreytt teymi til þess að tryggja yfirsýn yfir ólíka starfsemi stofnunarinnar.

Ferlið

Útreikningur losunar á viðmiðunarári

Grænt bókhald og losun gróðurhúsalofttegunda

Áður en hafist er handa við að móta loftslagsstefnu er nauðsynlegt að reikna losun gróðurhúsalofttegunda vegna þeirra þátta sem stefnan tekur til yfir eins árs tímabil, miðað er við almanaksárið. Það tímabil er notað sem viðmiðunarár sem samdráttarmarkmið miða við. Ríkisaðilum er í sjálfsvald sett hvaða ár notað er sem viðmiðunarár en mikilvægt er að það komi skýrt fram í stefnunni og að til séu haldbær gögn fyrir það ár sem ná utan um umfang stefnunnar.

Svo hægt sé að fylgjast með árangri af innleiðingu loftslagsstefnu er lykilatriði að halda utan um losun gróðurhúsalofttegunda fyrir hvert ár framvegis. Það gerir ríkisaðilum kleift að gera samanburð milli ára og forgangsraða aðgerðum eftir því hvernig losunin skiptist milli mismunandi umhverfisþátta.

Mælst er til þess að Grænt bókhald á vegum Umhverfis- og orkustofnunar sé notað til að áætla losun gróðurhúsalofttegunda. Vinnuskjal bókhaldsins er á excel formi og í það eru færðar inn upplýsingar um magn sem fást frá birgjum eða úr bókhaldi viðkomandi aðila.

Ef ríkisaðilar nota aðrar aðferðir en Grænt bókhald til að halda utan um losun frá rekstri er mælst til þess að losunarstuðlar Umhverfis- og orkustofnunar, sem innbyggðir eru í Græna bókhaldið, séu notaðir til útreikninga á losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta er gert til þess að gæta samræmis milli opinberra aðila. Ef ríkisaðilar eru að reikna losun annarra umhverfisþátta en þeirra sem skilgreindir eru í Græna bókhaldinu er mælst til þess að notast sé við viðurkennda losunarstuðla.

Skil á Grænu bókhaldi ríkisaðila

Ríkisaðilar skila Grænu bókhaldi í Gagnagátt Umhverfis- og orkustofnunar. Skila þarf að lágmarki tölum um losun gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna, úrgangs og orkunotkunar en skil á öðrum upplýsingum í Græna bókhaldinu eru valfrjáls. Möguleiki er á að öðrum þáttum verði bætt við síðar meir eftir því sem þekkingu fleytir fram (t.d. losun vegna matvæla). Skil þessi verða árleg og skulu upplýsingar um losun fyrra árs hafa borist í Gagnagátt Umhverfis- og orkustofnunar eigi síðar en 1. apríl ár hvert.

Loftslagsstefna mótuð

Hér að neðan má finna leiðbeiningar sem tilgreina hvaða atriði þurfa að koma fram í loftslagsstefnu. Röð og heiti þessara sjö atriða skiptir ekki höfuðmáli en mikilvægt er að öll komi þau fram með skýrum hætti í loftslagsstefnunni:

Sjö lykilatriði loftslagsstefnu

Framtíðarsýn

+

Yfirmarkmið

+

Umfang

+

Gildissvið

+

Eftirfylgni

+

Tenging við núverandi skuldbindingar

+

Kolefnisjöfnun

+

Hvernig gæti loftslagsstefna litið út?

Stofnunin stefnir á að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum með því að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) frá starfseminni og þeim áhrifum sem losunin hefur í för með sér. Stofnunin vill leggja sitt af mörkum til að markmiðum Parísarsamningsins sé náð og taka þannig virkan þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar.

Fram til 2030 mun stofnunin draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um samtals 40% miðað við árið 2018. Stofnunin mun fyrst og fremst leggja áherslu á að draga úr losun í rekstri en einnig kolefnisjafna alla eftirstandandi losun með kaupum á vottuðum kolefniseiningum frá og með árinu 2020.

Stefna þessi tekur mið af skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamningnum og yfirlýsingu forstöðumanna stofnana Ráðsráðuneytis um samdrátt í losun GHL og kolefnishlutleysi.

Stefnan nær til samgangna á vegum stofnunarinnar, orkunotkunar, úrgangsmyndunar og umhverfisfræðslu. Stefnan nær til allrar starfsemi stofnunarinnar, bygginga, mannvirkja og framkvæmda.

Loftslagsstefna stofnunarinnarer rýnd á hverju ári af stýrihóp umhverfismála og yfirmarkmið og undirmarkmið uppfærð með tilliti til þróunar í losun GHL á milli ára. Stefnan er samþykkt af yfirstjórn og upplýsingum um árangur aðgerða er miðlað á heimasíðu stofnunarinnar.

Umhverfis- og loftslagsstefna Umhverfis- og orkustofnunar
Íslenskt landslag, gróður og skýjaður himinn

Mælanleg markmið og aðgerðaáætlun

Markmiðasetning

Upplýsingar um markmið og aðgerðaáætlun geta verið hluti af loftslagsstefnunni sjálfri eða staðið sér sem annað plagg.

Í loftslagsstefnu skal koma fram yfirmarkmið um heildarsamdrátt í losun. Til þess að fylgja loftslagsstefnunni eftir er nauðsynlegt að skilgreina einnig mælanleg markmið fyrir hvern losunarþátt. Mikilvægt er að sett séu metnaðarfull en raunhæf markmið um samdrátt í losun. Því er gott að leggjast vel yfir útreikninga á losun gróðurhúsalofttegunda á viðmiðunarári og meta hvar raunhæft sé að ná árangri í samdrætti, hvernig og hvenær.

Hægt er að nýta sér hjálpargagn í formi töflureiknis sem auðveldar stofnunum að nýta niðurstöður Græns bókhalds til þess að sjá hversu mikill samdráttur er nauðsynlegur í hverjum losunarþætti fyrir sig svo að heildarmarkmiði í samdrætti losunar gróðurhúsalofttegunda sé náð.

Gott er að hafa SMART markmiðasetningu sem leiðarljós þegar markmið eru sett. SMART stendur hér fyrir skýr, mælanleg, aðlögunarhæf, raunhæf og tímasett markmið.

Loftslagsmarkmið Umhverfis- og orkustofnunar

SMART markmiðasetning

Skýr

+

Mælanleg

+

Aðlögunarhæf

+

Raunhæf

+

Tímasett

+

Gerð aðgerðaáætlunar

Markmiðum verða að fylgja aðgerðir. Aðgerðir skulu vera tímasettar og hafa tilgreindan ábyrgðaraðila, einnig er mælt með að áætla áhrif á losun og kostnað. Hér fyrir neðan má ná í sniðmát fyrir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ásamt lifandi aðgerðabanka.

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum – sniðmát

Aðgerðabanki

Einnig má finna dæmi um aðgerðaráætlun á bls. 11-13 í Loftslagsstefnu Stjórnarráðsins.

Framkvæmd, eftirfylgni og endurskoðun

Þegar lokið hefur verið við útreikninga á viðmiðunarári, þegar loftslagsstefna hefur verið mótuð og samþykkt, þegar tölusett markmið og tímasettar aðgerðir hafa verið settar fram í aðgerðaáætlun og þegar búið er að ákveða ábyrgðaraðila fyrir hverri aðgerð, er hafist handa við að innleiða aðgerðir.

Mikilvægt er að endurskoða markmið og aðgerðaáætlun árlega með tilliti til fyrri árangurs og nýrrar þekkingar á sviði umhverfis- og loftslagsmála, svo og ef miklar breytingar verða á rekstri vinnustaðarins.

Gott að vinna loftslags- og umhverfisstefnu saman

Í Grænu skrefunum hefur alltaf verið lögð áhersla á að stofnanir setji sér umhverfisstefnu.

Þegar skylda stofnana til að setja sér loftslagsstefnu var sett fram í loftslagslögum var þessu tvennu skeytt saman í aðgerðum skrefanna og tala um umhverfis- og loftslagsstefnu.

Það er ekki lagaleg skylda að setja sér umhverfisstefnu en hins vegar er það skylda í skrefunum. Enda ýmsir þættir mikilvægir umhverfisþættir þó þeir hafi lítil áhrif á loftslagið.

Um verkefnið

Líkt og kemur fram í lögum um loftslagsmál skulu Stjórnarráð Íslands, stofnanir ríkisins og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins (hér eftir ríkisaðilar/stofnun) setja sér loftslagsstefnu. Markmið laganna er að hið opinbera fari fram með góðu fordæmi þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að setja sér metnaðarfull markmið og móta aðgerðir til að fylgja þeim eftir. Áður en hafist er handa við að móta loftslagsstefnu er gott að átta sig á eftirfarandi atriðum:

Hvert er gildissvið loftslagsstefnunnar?

Loftslagsstefnan skal taka til reksturs ríkisaðila. Sjá nánar um gildissvið og umfang í leiðbeiningunum hér að ofan. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að vinna við loftslagsstefnu felur í sér gerð stefnunnar sjálfrar, setningu mælanlegra markmiða og aðgerðaáætlunar.

Tenging loftslagsstefnu við aðra stefnumótun

Loftslagsstefna getur staðið sér eða verið hluti/kafli í breiðari stefnumótun svo sem umhverfis- eða sjálfbærnistefnu, stefnu um samfélagslega ábyrgð og svo framvegis. Óháð því hvort stefnan er felld inn í aðrar stefnur eða ekki þurfa ríkisaðilar að geta sýnt fram á að þeir hafi sett sér stefnu samkvæmt leiðbeiningum svo hægt sé að sýna fram á að skylda sem sett er fram í loftslagslögum sé uppfyllt.

Losun gróðurhúsalofttegunda og skil á losunartölum til Umhverfis- og orkustofnunar

Til að hægt sé að setja sér mælanleg markmið þarf að byrja á að reikna losun gróðurhúsalofttegunda vegna starfseminnar. Valið er viðmiðunarár sem miðað er við í öllum markmiðum. Þar sem Umhverfis- og orkustofnun ber að hafa eftirlit með því að ríkisaðilar innleiði aðgerðir loftslagsstefnu fer stofnunin fram á að ríkisaðilar skili Grænu bókhaldi til stofnunarinnar. Losunarstuðlar sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út eru innbyggðir í bókhaldið. Sjá nánar í kaflanum Útreikningur losunar á viðmiðunarári hér að ofan.

Hvenær þarf loftslagsstefna ríkisaðila að vera tilbúin?

Umhverfis- og orkustofnun hvetur ríkisaðila til að hefjast strax handa við að móta sér loftslagsstefnu og setja sér markmið og aðgerðaáætlun til að fylgja henni eftir, en stefnan sjálf skal vera samþykkt eigi síðar en í árslok 2021.

Hvert er loftslagsstefnunni skilað?

Stofnanir sem taka þátt í Grænum skrefum skila loftslagsstefnu, markmiðum og aðgerðaáætlun til síns tengiliðar í teymi Grænna skrefa. Stofnanir sem ekki taka þátt í Grænum skrefum senda loftslagsstefnu, markmið og aðgerðaáætlun á graenskref@graenskref.is.

Hversu oft þarf að uppfæra loftslagsstefnuna?

Ríkisaðilar skulu rýna stefnuna eftir þörfum. Eðlilegt er að endurskoða markmið og aðgerðaáætlun árlega með tilliti til fyrri árangurs sem og og nýrrar þekkingar á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

Umhverfisstefna vs loftslagsstefna

Í Grænu skrefunum hefur alltaf verið lögð áhersla á að stofnanir setji sér umhverfisstefnu. Þegar skylda stofnana til að setja sér loftslagsstefnu var sett fram í loftslagslögum var tekin ákvörðun um að skeyta þessu tvennu saman í aðgerðum skrefanna og tala um umhverfis- og loftslagsstefnu. En hver er þá munurinn á umhverfisstefnu og loftslagsstefnu? 

Loftslagsstefna eins og hún er skilgreind samkvæmt leiðbeiningum á þessari síðu er auðvitað umhverfisstefna. Aftur á móti nær loftslagsstefna yfir afmarkað svið umhverfismála sem snúa að loftslagsbreytingum og losun gróðurhúsalofttegunda svo það þarf að passa upp á að aðrir umhverfisþættir gleymist ekki, sérstaklega ekki þeir þýðingarmestu. Þess vegna tölum við um umhverfis- og loftslagsstefnu í Grænu skrefunum. Dæmi um umhverfisþætti sem eiga heima í umhverfisstefnu en ekki endilega í loftslagsstefnu eru t.d. plastnotkun efnanotkun, pappírsnotkun og innkaup (þó að þessir þættir geti sannarlega valdið losun gróðurhúsalofttegunda er oftar en ekki erfitt að meta það eins og staðan er í dag). 

Æskilegt er að umhverfisstefna (unnið upp úr ISO 14001 staðlinum): 

  • Hæfi tilgangi og samhengi stofnunarinnar 
  • Skapi umgjörð til að setja markmið fyrir viðeigandi umhverfisþætti 
  • Feli í sér skuldbindingu um að vernda umhverfið, þ.m.t. með því að koma í veg fyrir mengun en einnig skal tilgreina aðrar sértækar skuldbindingar sem hæfa starfseminni ef við á (t.d. sjálfbær nýting auðlinda og verndun líffræðilegs fjölbreytileika) 
  • Feli í sér skuldbindingu um að uppfylla viðeigandi lagakröfur á sviði umhverfismála 
  • Feli í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur á umhverfisstjórnunarkerfinu (ef það er til staðar) til að auka árangur í umhverfismálum 

Dæmi um samtvinnaða umhverfis- og loftslagsstefnu má sjá á vef Umhverfis- og orkustofnunar og umfjöllun um umhverfisstjórnun, umhverfisþætti og umhverfisáhrif má finna í leiðbeiningum um 5. skref undir Vinnugögn á heimasíðu Grænna skrefa.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800