Græn skref
Um verkefnið
Græn skref er verkefni sem styður stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins við að vinna markvisst að umhverfismálum, orkunýtni og hagræðingu í rekstri. Verkefnið byggir á fimm skrefum með skýrum gátlistum sem auðvelda þátttakendum að innleiða markvissar og mælanlegar aðgerðir í starfsemi sinni.
Í Grænum skrefum er jafnframt lögð áhersla á ábyrga nýtingu fjármuna og að innkaup séu í samræmi við rammasamninga ríkisins þar sem við á. Þannig stuðlar verkefnið að auknu aðhaldi í rekstri samhliða því að draga úr umhverfisáhrifum.
Umhverfis- og orkustofnun hefur umsjón með verkefninu, heldur utan um þátttöku og framkvæmir úttektir. Verkefnið stuðlar jafnframt að virkri þátttöku starfsfólks og aukinni þekkingu og umhverfisvitund í daglegri starfsemi.
Þátttakendur í verkefninu
Hvert er ferlið?
- Stofnun skráir sig til leiks
- Þriggja til fimm manna teymi skipað sem fer fyrir innleiðingu verkefnisins á vinnustaðnum
- Gátlista hlaðið niður hér
- Aðgerðir fyrsta skrefs (eða fleiri skrefa) uppfylltar – skoðið dæmi um vel útfylltan gátlista hér
- Útfylltur gátlisti sendur á umsjónarmenn Grænna skrefa
- Þegar umsjónarmenn telja a.m.k. 90% aðgerða uppfylltar er bókaður tími í úttekt
- Umsjónarmaður Grænna skrefa kemur í úttekt á vinnustað eða í gegnum Teams
- Skrefið er í höfn og stofnun fær sent viðurkenningarskjal. Við hvetjum ykkur til þess að fagna áfanganum!

Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





