Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Skref 5 í Grænum skrefum

Uppfylla þarf minnst 90% (14 af 15 aðgerðum) til að ljúka skrefinu

Gátlisti

Hér er hægt að hlaða niður gátlista á Excel formi með öllum skrefum og aðgerðum skrefanna. Þetta vinnuskjal er lykilatriði í að halda utan um innleiðingu verkefnisins. Umhverfis- og orkustofnun fer yfir skjalið fyrir hverja úttekt.

Aðgerðir í skrefi 5

Loftslagsstefna (4 aðgerðir)

  • Við höfum skilgreint helstu umhverfisþætti, lagakröfur og gildissvið starfsemi okkar, og tryggjum reglulega yfirferð og samræmi við umhverfis- og loftslagstefnu og aðgerðaáætlun.
  • Loftslagsstefna skal vera aðgengileg hagsmunaaðilum, til dæmis á heimasíðu.
  • Við erum búin að skila inn aðgerðaráætlun á graenskref@graenskref.is.
  • Rýni stjórnenda fer fram árlega.

Markmið í aðgerðaáætlun (4 aðgerðir) - aðgerðir skulu vera:

  • Tímasettar.
  • Hafa tilgreindan ábyrgðaraðila.
  • Vera endurskoðað, uppfært árlega.
  • Setja fasta tímasetningu á platínu dekk í bílaflotanum.

Eftirfylgni og ábyrgð (6 aðgerðir)

  • Mælt er með einföldu og aðgengilegu fyrirkomulagi fyrir eftirfylgni, þar sem unnt er að tryggja að umbótum sé fylgt eftir. Við höfum skilgreint hlutverk og ábyrgð lykil starfsfólks.
  • Skoðað hlutfall samgöngusamninga hjá starfsfólki. Borið saman við fyrri ár.
  • Samgöngukönnun er lögð fyrir starfsfólk árlega og niðurstöðum skilað á grænskref.is.
  • Árleg samantekt á magni á blönduðum úrgangi á stofnuninni, borið saman við fyrri ár.
  • Hafa skýra ábendingarleið fyrir starfsfólk ef eitthvað í starfseminni samræmist ekki aðgerðaráætlun.
  • Vera vakandi yfir umhverfisskilyrði í rammasamningum, og senda póst á graenskref@graenskref.is ef stofnun er var við annmarka eða þjónustu sem ekki uppfylla ákvæði rammasamninga. Dæmi: Ef leigður er bílaleigubíll og leiguaðili býður ekki upp losunarfrítt ökutæki.

Fræðsla (1 aðgerð)

  • Við upplýsum og fræðum stöðugt starfsfólk okkar til að gera þá meðvitaðri og hæfari í að draga úr umhverfisáhrifum í störfum sínum og daglegu lífi. Við setjum okkur fræðsluáætlun fyrir hvert ár þar sem fram kemur hvernig fræðsla fer fram á árinu, hversu oft, hvenær og hver sér um hana.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800