Skref 1 í Grænum skrefum
Uppfylla þarf minnst 90% (28 af 31 aðgerð) til að ljúka skrefinu
Gátlisti
Hér er hægt að hlaða niður gátlista á Excel formi með öllum skrefum og aðgerðum skrefanna. Þetta vinnuskjal er lykilatriði í að halda utan um innleiðingu verkefnisins. Umhverfis- og orkustofnun fer yfir skjalið fyrir hverja úttekt.
Aðgerðir í skrefi 1
Miðlun og stjórnun (3 aðgerðir)
- Við höfum kynnt okkur leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar um loftslagsstefnu og umhverfisstjórnun.
- Við höfum skipað teymi sem sér um skipulag og innleiðingu Grænna skrefa á öllum starfsstöðvum, og kynnir þau fyrir starfsfólki.
- Við höfum óskað eftir samstarfi húsfélags eða rekstraraðila um umhverfisúrbætur, til dæmis úrgangsflokkun, lýsingu og hitun.
Innkaup (2 aðgerðir)
- Við erum með innkaupagreiningu sem tryggir yfirsýn yfir umhverfisvæn innkaup og undirbúning fyrir verklagsreglur.
Gott er að einblína á að:
- velja vörur með áreiðanleg umhverfismerki,
- meta þörf áður en keypt er og forðast óþarfa innkaup,
- samræma innkaup og nýta umhverfisvæna valkosti,
- kaupa umhverfisvottaðan pappír og skrifstofuvörur,
- forðast einnota umbúðir,
- og hvetja birgja/mötuneyti til að bjóða upp á umhverfisvottaðar vörur. - Góð heyrnatól (helst með hljóðnema) eru til fyrir allt starfsfólk sem þau geta nýtt sér á fjarfundum.
Samgöngur (6 aðgerðir)
- Það er góð aðstaða til að læsa hjólum fyrir starfsfólk og gesti fyrir utan vinnustaðinn.
- Við höfum óskað eftir því við helstu samstarfsaðilar okkar innanlands sem og erlendis bjóði upp á að fleiri fundir sé hægt að sækja í gegnum fjarfund.
- Við hvetjum starfsfólk til að gera samgöngusamning. Þessi möguleiki er kynntur öllu starfsfólki árlega. Minna á að hægt er að sækja um til dæmis bara fyrir sumartímann.
- Við erum með reglur um að panta losunarfría bíla hjá bílaleigum og leigubílum.
- Við tökum þátt í átaksverkefnum sem styðja við vistvænar samgöngur. Til dæmis Hjólað í vinnuna.
- Hver er staðan á bílaflota stofnunarinnar - útskiptiáætlun.
Rafmagn og húshitun (3 aðgerðir)
- Tryggjum að engin halogen eða glóperur séu ennþá í notkun í okkar fasteignum.
- Við höfum gert verklag til að draga úr orkunotkun í lýsingu og tækjum (til dæmis slökkva ljós, nýta viðbragðsstöðu (standby), nota áminningar).
- Við höfum hugað að hagkvæmri húshitun og loftræsingu, og starfsfólk er meðvitað um stillingar .
Flokkun og minni sóun (6 aðgerðir)
- Engin ílát eru undir blandaðan úrgang við skrifborð starfsfólks. Starfsfólk fer sjálft með blandaðan úrgang í flokkun í sameiginlegum rýmum.
- Við höfum aðgengilegt og merkt flokkunarkerfi fyrir helstu úrgangsflokka. - Lágmark 5 flokkar eru þar sem úrgangur fellur til.
- Við flokkum spilliefni.
- Við lágmörkum pappírsnotkun með rafrænum lausnum og endurnýtum pappír.
- Við endurnýtum eða skilum vörum eins og rafhlöðum og raftækjum.
- Við höfum afþakkað allan fjölpóst .
Viðburðir og fundir (4 aðgerðir)
- Við bjóðum upp á kranavatn en ekki vatn í einnota drykkjarumbúðum. Þegar viðburðir eru haldnir af utanaðkomandi aðila er þessari kröfu komið á framfæri við staðarhaldara.
- Á viðburðum okkar og fundum utan- og innanhúss er einungis boðið upp á margnota borðbúnað (diska, rör, hrærur og fleira). Þegar viðburðir eru haldnir utanhúss er þessari kröfu komið á framfæri við staðarhaldara.
- Við hvetjum til vistvænna ferðamáta þegar fólk mætir á viðburði.
- Við bjóðum upp á viðveru í gegnum fjarfundarbúnað á þeim fundum sem við boðum, fyrir þá sem það kjósa.
Eldhús og kaffistofur (5 aðgerðir)
- Við notum eingöngu margnota borðbúnað og hvetjum til minni einnota umbúða.
- Við kynnum starfsfólki og gestum hvernig draga megi úr matarsóun.
- Hafa merkingar og leiðbeiningar varðandi umhverfismál sýnilegar í mötuneyti.
- Við bjóðum upp á grænkeravalmöguleika í mötuneyti.
- Í mötuneyti og á kaffistofum er lífrænum úrgangi safnað og tryggt að hann fari í jarðgerð.
Sértæk aðgerð
- Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og tengist sérstaklega starfsemi stofnunarinnar og stuðlar að umhverfismálum. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.
Viðbótar aðgerð
- Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og er framlag til umhverfismála. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.
Listi yfir viðbótaraðgerðir
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins










