Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Skref 3 í Grænum skrefum

Uppfylla þarf minnst 90% (21 af 23 aðgerðum) til að ljúka skrefinu

Gátlisti

Hér er hægt að hlaða niður gátlista á Excel formi með öllum skrefum og aðgerðum skrefanna. Þetta vinnuskjal er lykilatriði í að halda utan um innleiðingu verkefnisins. Umhverfis- og orkustofnun fer yfir skjalið fyrir hverja úttekt.

Aðgerðir í skrefi 3

Miðlun og stjórnun (2 aðgerðir)

  • Við höfum sett okkur mælanleg markmið  fyrir þá umhverfisþætti sem umhverfis-og loftslagsstefna okkar nær til.
  • Við höldum utan um og miðlum umhverfismálum til starfsfólks á innri vef og skipuleggjum reglulega þátttöku í umhverfisviðburðum/verkefnum, til dæmis Stóri plokkdagurinn, strandhreinsun, samgönguvika, nýtnivika. 

Innkaup (5 aðgerðir)

  • Við höfum innleitt verklag um umhverfisvæn innkaup og þjónustu, þar sem gerðar eru kröfur um umhverfisvottaðar vörur og þjónustu (áreiðanleg umhverfismerki, til dæmis Svanur eða Evrópublómið).
  • Starfsfólk notar hleðslurafhlöður í stað einnota rafhlaða eða eru með tengingu við rafmagn (hægt er að kaupa svansvottaðar einnota og fjölnota rafhlöður).
  • Áður en húsgögn/búnaður eru keypt er fyrst athugað hvort til séu notuð húsgögn í geymslu, hjá öðrum stofnunum/fyrirtækjum eða á nytjamarkaði.
  • Ef kaupa á ný húsgögn/búnað, skoða þá ný húsgögn sem eru með umhverfisvottun, svo sem Svaninn eða Evrópublómið (gott er að kynna sér rammasaminga).
  • Rafvæðing í garðslætti

Samgöngur (4 aðgerðir)

  • Hjól, rafhjól og eða rafhlaupahjól eru í boði fyrir starfsfólk til þess að ferðast, til dæmis á fundi utan stofnunar.
  • Við bjóðum starfsfólki okkar upp á sveigjanlegan vinnutíma sé þess kostur, til dæmis að mæta til vinnu utan háannatíma. Við bjóðum starfsfólki okkar upp á fjarvinnu að minnsta kosti einu sinni í viku sé þess kostur. 
  • Við höfum náð markmiðum með 60% losunarfrían bílaflota og fengið viðurkenningu fyrir silfurdekkið.
  • Ferðavenjukönnun er gerð árlega.

Rafmagn og húshitun (3 aðgerðir)

  • Við höfum lagt áherslu á miðlæga nýtingu prentara, tölvubúnaðar og annarra raftækja og höfum fækkað tækjum og samnýtt þau eins og kostur er.
  • Við drögum úr orkunotkun með reglulegu eftirliti, stillingu hita og lýsingar.
  • Húshitun á rafhituðum svæðum. Við tryggjum bætta orkunýtni, til dæmis með varmadælu.

Flokkun og minni sóun (4 aðgerðir)

  • Við setjum okkur markmið um hversu mikið við ætlum að draga úr myndun á blönduðum úrgangi og leggjum til áætlun til að ná þeim markmiðum.
  • Við upplýsum starfsfólk um árangur á innri vef, til dæmis með úrgangstölum og myndbirtingum.
  • Skrifstofuvörur sem má endurnota er skilað á sérmerktan stað sem starfsfólk þekkir og getur nálgast. Dæmi um slíkar vörur eru möppur, pennar og umslög.
  • Útgáfa kynningarefnis og annars efnis er ávallt rafræn. Ef nauðsynlegt er að gefa út pappírsútgáfu er hún í takmörkuðu upplagi. 

Viðburðir og fundir (2 aðgerðir)

  • Fyrir viðburði og fundi þar sem boðið er upp á veitingar er passað að rétt magn af mat sé keypt eða pantað til að lágmarka matarsóun. Til dæmis með því að halda utan um skráningu á viðburði.
  • Við val á gistirými, bæði erlendis og innanlands, er starfsfólk hvatt til þess að velja staði með umhverfisvottun. 

Eldhús og kaffistofur (1 aðgerð)

  • Við höfum gert athugun á matarsóun frá eldhúsi/mötuneyti í minnst eina viku á ári. Sjá leiðbeiningar í myndbandi á heimasíðu Grænna skrefa.

Sértæk aðgerð

  • Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og tengist sérstaklega starfsemi stofnunarinnar og stuðlar að umhverfismálum. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.

Viðbótar aðgerð

  • Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og er framlag til umhverfismála. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.

    Listi yfir viðbótaraðgerðir

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800