Skref 4 í Grænum skrefum
Uppfylla þarf minnst 90% (15 af 17 aðgerðum) til að ljúka skrefinu
Gátlisti
Hér er hægt að hlaða niður gátlista á Excel formi með öllum skrefum og aðgerðum skrefanna. Þetta vinnuskjal er lykilatriði í að halda utan um innleiðingu verkefnisins. Umhverfis- og orkustofnun fer yfir skjalið fyrir hverja úttekt.
Aðgerðir í skrefi 4
Miðlun og stjórnun (2 aðgerðir)
- Við höfum mótað aðgerðaáætlun út frá markmiðum okkar í umhverfis-og loftslagsstefnu. Áætlun hefur verið kynnt starfsfólki, sem hvött er til að koma á fram ábendingu.
- Við vekjum athygli á umhverfismálum með áhugaverðum hætti, til dæmis með skiptirmarkað fyrir föt, bækur, púsl, plöntur, skógjafir jólasveinanna og öskudagsbúninga.
Innkaup (3 aðgerðir)
- Við tökum árlega úttekt á verklagi um umhverfisvæn innkaup þar með talið efnanotkun, við vitum hvaða efni eru hættuleg og erum með áætlun um að minnka notkun þeirra.
- Þegar gjafir handa starfsfólki eða öðrum eru keyptar er hugað að nytsemi og umhverfinu. Upplifanir, íslensk matvæli eru dæmi um gjafir sem uppfylla ofangreind skilyrði. Frídagar eru góð jólagjöf!
- Við notum aðeins HVO (lífrænan dísil) á allar varaflsstöðvar.
Samgöngur (4 aðgerðir)
- Rafhleðslustöð (aðstaða) fyrir rafbíla er í boði fyrir starfsfólk og gesti.
- Við höfum greint hversu stórt hlutfall starfsfólks er með samgöngusamning og sett okkur markmið um að auka verulega hlutdeild þeirra sem eru með samgöngusamning.
- Við höfum náð markmiðum með 90% losunarfría bílaflota er og við höfum fengið viðurkenningu fyrir gulldekkið.
- Við erum með samgönguáskorun.
Rafmagn og húshitun (2 aðgerðir)
- Þar sem viðvera er lítil, svo sem á snyrtingum og í geymslum eru hreyfiskynjarar í stað rofa. Þar sem ekki er hægt að setja upp slíka nema eru áminningarmiðar um að slökkva ljósin.
- Stofnun staðsett á rafhituðu svæði eru búnar að setja upp varmadælu.
Flokkun og minni sóun (2 aðgerðir)
- Sýnum tölulegan árangur á hverngi við höfum dregið úr myndun á blönduðum úrgangi.
- Við höfum sett upp skiptistöð (borð og/eða fataslá) þar sem starfsfólk getur komið með hluti að heiman sem það vill gefa áfram og aðrir geta fengið, annaðhvort í afmarkaðan tíma, árlega eða til frambúðar
Viðburðir og fundir (1 aðgerð)
- Þegar við bjóðum upp á veitingar veljum við umhverfisvænni próteingjafa (til dæmis baunir, belgjurtir, hnetur, egg, fisk, kjúkling, ost, og innmat) frekar en rautt kjöt.
Eldhús og kaffistofur (1 aðgerð)
- Sýna tölulegan árangur í samdrætti á magni úrgangs.
Sértæk aðgerð
- Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og tengist sérstaklega starfsemi stofnunarinnar og stuðlar að umhverfismálum. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.
Viðbótar aðgerð
- Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og er framlag til umhverfismála. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.
Listi yfir viðbótaraðgerðir
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins










