Skref 2 í Grænum skrefum
Uppfylla þarf minnst 90% (24 af 27 aðgerðum) til að ljúka skrefinu
Gátlisti
Hér er hægt að hlaða niður gátlista á Excel formi með öllum skrefum og aðgerðum skrefanna. Þetta vinnuskjal er lykilatriði í að halda utan um innleiðingu verkefnisins. Umhverfis- og orkustofnun fer yfir skjalið fyrir hverja úttekt.
Aðgerðir í skrefi 2
Miðlun og stjórnun (4 aðgerðir)
- Við höfum sett okkur umhverfis-og loftslagsstefnu og kynnum hana fyrir starfsfólki.
- Starfsfólk fær reglulega upplýsingar og fræðslu um umhverfismál og Græn skref.
- Staða stofnunarinnar í Grænu skrefunum er birt á heimasíðu.
- Við stuðlum að umhverfisvænu viðhaldi og gerum kröfur til húseiganda um orkusparandi og umhverfisvæn kerfi
Innkaup (4 aðgerðir)
- Við höfum mótað verklagsreglur fyrir innkaup þar sem meðal annars kemur fram hverjir það eru sem kaupa inn fyrir stofnunina og hvernig það er tryggt að kröfur okkur í umhverfismálum komist til skila í innkaupum. Verklagsreglurnar hafa verið samþykktar af yfirstjórn og kynntar öllu starfsfólki.
- Nýtt starfsfólk sem hefur hlutverki að gegna í innkaupum fær grunnþjálfun í vistvænum innkaupum hjá stofnuninni.
- Við kaup á tölvubúnaði er gerð krafa um að tölvur séu merktar viðeigandi umhverfismerkjum.
- Við notum ekki nagladekk á bílaflotanum okkar
Samgöngur (3 aðgerðir)
- Við bjóðum upp á góða aðstöðu innanhúss og hvata fyrir hjólandi og gangandi starfsfólk.
- Fyrsta val er að sækja ávallt fjarfundi. Ef ekki hægt þá notum við eins vistvænan ferðamáta og hægt er, bæði innanlands og erlendis.
- Við höfum náð markmiðum með 30% losunarfrían bílaflota og erum komin með viðurkenningu fyrir bronsdekkið
Rafmagn og húshitun (3 aðgerðir)
- Umsýsla fasteigna - Úttekt er gerð á snjóbræðslukerfið og loftræsting (kanna orkutap og gæði loftræstingar).
- Merkingar eru við lyftur þar sem starfsmenn og gestir eru hvattir til að nota stiga í stað lyftu.
- Við höfum sett markmið og leiðbeiningar um orkusparnað og greinum raforku- og hitanotkun reglulega.
Flokkun og minni sóun (5 aðgerðir)
- Við söfnum tölum um stöðuna á blönduðum úrgangi hjá okkur og greinum möguleika á hvar við getum gert betur. Óskum eftir úrgangstölfræði frá þjónustuaðila að minnsta kosti árlega.
- Við höfum lágmarkað notkun okkar á plastpokum, til dæmis sleppt þeim alfarið í flokkunartunnum eða notað þá aftur og aftur.
- Við notum margnota vörur í stað einnota vara. Þar sem þörf er á að nota poka, notum við niðurbrjótanlega poka í stað óniðurbrjótanlegra poka.
- Við höfum innleitt aðgerðir sem draga úr pappírsnotkun (til dæmis rafræna skjalavistun, rafrænar undirskriftir).
- Áskrift af tímaritum er rafrænt, dregið hefur verið úr kaupum á tímaritum og öðru sem fáir/engir nota. Við höfum hætt kaupum á tímaritum og öðru sem enginn notar.
Viðburðir og fundir (3 aðgerðir)
- Þegar boðið er upp á mat á fundum og viðburðum er boðið upp á grænkera (vegan) valmöguleika.
- Á viðburðum okkar bæði innan- og utanhúss geta gestir flokkað pappír, plast, lífrænan úrgang, skilagjaldsumbúðir og allt sorp sem fellur til á viðburð.
- Starfsfólk sem skipuleggur viðburði styðjast við gátlista á vef Grænna skrefa.
Eldhús og kaffistofur (3 aðgerðir)
- Við kaupum lífrænar, siðgæðisvottaðar og umhverfisvottaðar vörur.
- Við drögum úr umbúðum með samvinnu við birgja.
- Við drögum úr matarsóun með samvinnu við birgja og meðhöndlun úrgangs.
Sértæk aðgerð
- Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og tengist sérstaklega starfsemi stofnunarinnar og stuðlar að umhverfismálum. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.
Viðbótar aðgerð
- Aðgerð sem vinnustaðurinn/starfsstöðin hefur framkvæmt og er framlag til umhverfismála. Umsjónarmenn Grænna skrefa meta hvort stig sé gefið fyrir aðgerðina.
Listi yfir viðbótaraðgerðir
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins










