Merki Umhverfis- og orkustofnunar
Event header texture

8. júní 2026

Fræðslufundur: Mat á áhrifum framkvæmda á vatnshlot

IcewaterHaf og vatn

Á fundinum munu sérfræðingar frá Umhverfis- og orkustofnun, Hafrannsóknastofnun, Veðurstofu Íslands og Náttúrufræðistofnun fjalla um ýmislegt sem varðar mat á áhrifum framkvæmda og starfsemi á vatnshlot. Fundurinn er opinn öllum. Farið verður yfir tilgang matsins, áhrifaþætti og líkleg áhrif þeirra á ástand vatnshlota. Eins verða tekin dæmi um nálgun við gerð áhrifamats.

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 8. júní í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 í Reykjavík og hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 15:30. Húsið opnar 8:30. Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímanlega svo tíminn nýtist sem best.

Fundurinn verður jafnframt í streymi fyrir þau sem hafa ekki tök á að koma á staðinn.

Skráning

Vinsamlegast skráið ykkur svo hægt sé að áætla veitingar. Opna skráningarsíðu.

Streymt verður frá fundinum og það þarf ekki að skrá sig til að fylgjast með streyminu.

Hlekkur á streymi verður aðgengilegur á þessari síðu þegar nær dregur.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800