Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21

17 verkefni víðs vegar um landið hafa hlotið styrki til að byggja upp hleðsluinnviði.

Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Markmiðið er að tryggja að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverju einasta þéttbýli á landinu. Átakið er liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa og hækkandi olíuverðs. Markmiðið er að gera sem allra flestum Íslendingum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni og keyra um á hreinni íslenskri orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:  „Við afnámum vörugjöld af rafbílum í upphafi árs og nú snarfjölgum við hleðslustöðvum vítt og breitt um landið, eyðum þannig skallablettunum í hleðslunetinu og vinnum gegn hleðslukvíða. Skilaboðin eru þessi: Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagnsbíl. Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir íslenska orku spörum við tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.“ 

Alls hljóta 17 verkefni víðs vegar um landið styrki, þar af 13 verkefni til uppsetningar á hraðhleðslustöðvum og fjögur til uppsetningar á hefðbundnum hleðslustöðvum. Heildarupphæð styrkjanna er 151 m.kr.  

Með átakinu fjölgar hleðslustöðvum á landsbyggðinni um samtals 21 og tenglum um 41 og alls staðar verður boðið upp á greiðslu með greiðslukorti án þess að app eða áskrift þurfi til.

UmsækjandiStaðsetningStyrkupphæð (kr.)
Verkefnaflokkur A 104.268.631
HS OrkaGrindavík6.082.000
Instavolt Iceland ehf.Kópasker10.525.000
Instavolt Iceland ehf.Raufarhöfn10.525.000
Ísorka ehf.Dalvík3.562.062
Orka náttúrunnar ohf.Hofsós20.000.000
Orkubú VestfjarðaDrangsnes5.227.149
Orkubú VestfjarðaSuðureyri5.227.149
Orkubú VestfjarðaFlateyri5.227.149
Orkubú VestfjarðaSúðavík5.914.195
Orkubú VestfjarðaÞingeyri5.227.149
Orkubú VestfjarðaReykhólahreppur5.227.149
Orkubú VestfjarðaNorðurfjörður5.699.629
Orkusalan ehf.Hvammstangi15.825.000
Verkefnaflokkur B 46.666.272
HS OrkaÞjórsárdalur10.640.000
Ísorka ehf.Möðrudalsöræfi20.000.000
Orkubú VestfjarðaHvítanes7.415.261
Orkubú VestfjarðaFlókalundur8.607.011
Samtals150.930.903
Image

Mynd: Staðsetning verkefnanna sem hljóta styrk. Verkefnaflokkur A er merktur með rauðum lit og verkefnaflokkur B er merktur með grænum lit.

 

Fleiri fréttir

Skoða
1. september 2026
Raforkueftirlitið kallar eftir auknu gagnsæi á íslenskum raforkumarkaði
Raforkueftirlitið hefur sent frá sér leiðbeiningar til Landsnets og annarra aðila á íslenskum heildsöluorkumarkaði um afhendingu og birtingu upplýsinga. Eftirlitið telur að gildandi reglum um gagnsæi á raforkumarkaði hafi ekki verið framfylgt með fullnægjandi hætti hér á landi og að breyttar aðstæður kalli á úrbætur.  Aukin upplýsingagjöf Um er að ræða svokallaða Gagnsæisreglugerð ESB á orkumarkaði, sem hefur verið í gildi á Íslandi frá árinu 2020. Reglugerðin kveður meðal annars á um að upplýsingar um raforkuframleiðslu, notkun, bilanir, ótiltækileika framleiðslueininga, flutningskerfi og jöfnun skuli safnað og birtar opinberlega með samræmdum hætti. Markmið Markmiðið er að tryggja að markaðsaðilar hafi jafnan aðgang að mikilvægum upplýsingum og að íslenskur raforkumarkaður verði gagnsærri og fyrirsjáanlegri. Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga á grundvelli 20. gr. h. raforkulaga, sbr. REMIT, og upplýsingaskylda á grundvelli gagnsæisreglugerðarinnar eru ekki ein og hin sama, þótt ákveðið samspil sé þar á milli.  Samræmd upplýsingagjöf Samkvæmt reglugerðinni ber Landsneti að safna upplýsingum frá aðilum á orkumarkaði og birta þær á miðlægum upplýsingavettvangi ENTSO-E og í NUCS-kerfinu. Íslenski orkumarkaðurinn er hluti af innri markaði með raforku samkvæmt EES-samningnum og því þurfa upplýsingar að vera aðgengilegar með sama hætti og eftir sömu stöðlum og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Raforkueftirlitið beinir því nú til Landsnets og aðaleigenda gagna, þar á meðal framleiðenda, stórnotenda og viðskiptavettvanga raforku, að hefja innleiðingu á breyttu verklagi og stöðluðum gagnaskilum. Aðilar eiga jafnframt að hefja samstarf um framkvæmd verkefnisins og tímaramma þess.
14. ágúst 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028-2023. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 30. september 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800