Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Sérfræðingar í losunarbókhaldi á Norðurlöndunum hittust í Reykjavík

Umhverfis- og orkustofnun og Land og skógur héldu saman norræna ráðstefnu sérfræðinga í losunarbókhaldi (e. Nordic Inventory Experts Meeting) í Reykjavík 16.–17. apríl 2026. Ráðstefnan er árlegur viðburður og vettvangur þar sem Norðurlöndin bera saman bækur sínar, ræða það sem virkar, það sem er flókið og það sem þarf að leysa.

Í almennri umræðu var meðal annars farið yfir hvernig ákvarðanir eru teknar þegar breytingar á aðferðafræði hafa áhrif á alþjóðlegar skuldbindingar. Einnig var fjallað um nýtt norrænt verkefni um útgáfu losunarstuðla sem miðar að því að einfalda fyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum og einstaklingum að reikna losun gróðurhúsalofttegunda frá sinni starfsemi.

Image

Orka

Í orkugeiranum beindist umræðan meðal annars að því hvernig eigi að meðhöndla losun frá æfingaflugi, heræfingum ríkja og nýrri starfsemi á borð við kolefnisföngun þar sem CO₂ er flutt milli landa. Einnig voru tekin dæmi um að nýjar mælingar gefi til kynna meiri metanleka frá efnaiðnaði og olíuhreinsunarstöðvum erlendis en áður var talið.

Landbúnaður

Í landbúnaðargeiranum var fjallað um nýjustu rannsóknir og gögn. Þar á meðal um metan frá nautgripum og N₂O losun frá jarðvegi, auk þess hvernig taka skuli tillit til nýrra loftslagsaðgerða eins og notkunar fóðuraukefna. Þá var einnig rætt hvernig bæta megi útreikninga þegar gögn eru takmörkuð, til dæmis varðandi áburðarnotkun og meðhöndlun plöntuleifa.

Image

Landnotkun

Í landnotkunargeiranum (LULUCF) snerist umræðan um þróun aðferða til að meta losun og bindingu kolefnis og hvenær flóknari líkanagerð á við. Mörg málefni voru rædd, þar á meðal upptaka nýrra losunarstuðla, jarðvegslíkön og ólíkar skilgreiningar landanna á lífrænum jarðvegi.

Úrgangur

Í úrgangsgeiranum var fjallað um losun frá brennslu úrgangs, hvernig reikna eigi losun frá stöðvum sem sameina lífgassöfnun og jarðgerð og hvaða farvegir eru til staðar fyrir seyru. Einnig var rætt hvort hægt sé að meta losun vegna fráveitu frá fiskeldi, þar sem gögn eru breytileg milli landa og það skortir aðferðafræði í leiðbeiningar IPCC.

Image

Um 100 manns tóku þátt í dagskránni. Þar af um 40 á staðnum í húsakynnum Umhverfis- og orkustofnunar á Suðurlandsbraut og um 60 í fjarfundi.

Norðurlöndin skiptast á að halda fundinn og næst verður hann haldinn í Finnlandi.

Image

Fleiri fréttir

Skoða
19. maí 2026
Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús
Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir. Styrkhæf verkefni Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa sem eru með 8 íbúðir eða fleiri og þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf. Styrkir eru meðal annars veittir fyrir lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði og fyrir stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishússins. Styrkupphæð Styrkupphæð getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Umsóknarfrestur Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí og er umsóknarfrestur vegna styrkjanna til 1. október kl. 15:00. Sótt er um í gegnum island.is á vef Loftslags- og orkusjóðs. Nánari upplýsingar Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Spurningum má beina á orkusjodur@uos.is. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað" á heimasíðu sjóðsins. Aðgerðir ríkisstjórnar Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og aukinnar óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru á fréttamannafundi 10. apríl síðastliðinn. Aðgerðirnar miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum verðhækkana og hins vegar að því langtímaverkefni að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Vegna hins síðarnefnda hefur Loftslags- og orkusjóður þegar auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land með það að markmiði að loka gatinu í hraðhleðsluneti á vegum landsins. Þá verða styrkir vegna hleðsluinnviða við gististaði auglýstir innan skamms. Samhliða vinna stjórnvöld að breytingum sem eiga að tryggja einfaldara og samræmdara greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla.
19. maí 2026
Aukin afköst og samlegð með nýrri Umhverfis- og orkustofnun – Greining World Energy Council
Ný alþjóðleg greining staðfestir sterka stöðu Íslands í orkumálum en bendir jafnframt á að næsti áfangi orkuskipta ráðist af framkvæmdagetu, skilvirku regluverki og samhæfingu. Þetta kemur fram í World Energy Issues Monitor 2026, árlegri greiningu World Energy Council á stöðu og helstu áskorunum í orkumálum á heimsvísu. Ísland meðal fremstu ríkja Í greiningunni á stöðu Íslands kemur fram að landið er áfram meðal fremstu ríkja heims á sviði orkumála, með nær alfarið endurnýjanlega raforkuframleiðslu og hitaveitu. Þar kemur einnig skýrt fram að helstu áskoranir framtíðarinnar snúa síður að auðlindum eða tækni heldur mun frekar að getu til framkvæmda, skilvirku regluverki og stjórnsýslu, og samhæfingu. Bent er á að Ísland standi á ákveðnum tímamótum. Landið hefur náð árangri í fyrstu kynslóð orkuskipta, en framhaldið mun ráðast af því hvort takist að hrinda í framkvæmd sífellt flóknari innviðaverkefnum, tryggja samræmda stefnu og skapa skilvirkt regluverk. Sameining stofnana skilar árangri Sameining Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar árið 2025 er metin sem mikilvæg kerfisbreyting í þessa átt. Með henni er dregið úr tvíverknaði, aukið á samhæfingu milli orku- og umhverfismála og skilvirkni í leyfisveitingum bætt. Fyrstu niðurstöður benda til þess að þessi nálgun hafi þegar skilað verulegum árangri. Á fyrsta starfsári nýrrar stofnunar jókst afkastageta í leyfisveitingum um allt að 75%, án þess að gæðum væri fórnað. Uppbygging innviða stærsta áskorunin Greiningin undirstrikar að stærsta áskorun Íslands felst nú í uppbyggingu og afhendingu innviða. Orkukerfið er að þróast frá tiltölulega einföldu kerfi yfir í flókið, samþætt kerfi þar sem rafvæðing samgangna, umbreyting iðnaðar og aukin orkunotkun setja auknar kröfur á skipulag og framkvæmd. Ef samhæfing er ekki nægileg getur tafir í einum hluta kerfisins haft keðjuverkandi áhrif, aukið kostnað og dregið úr trausti fjárfesta. Því er ljóst að framkvæmdageta og samræming milli kerfa verða lykilforsendur áframhaldandi árangurs. Fyrirsjáanlegt regluverk mikilvægt Óvissa í leyfisveitingum er skilgreind sem einn stærsti áhrifaþátturinn á fjárfestingar. Hún getur lengt framkvæmdatíma, aukið kostnað og áhættu. Til að bregðast við þessu hafa stjórnvöld lagt áherslu á einfaldari og hraðari ferla, skýrari tímamörk og markvissa forgangsröðun verkefna. Markmiðið er að styrkja samkeppnishæfni Íslands og auka aðdráttarafl fyrir fjárfestingar í grænni orku og innviðum. Orkuskipti í alþjóðlegu samhengi Þrátt fyrir sterka stöðu í endurnýjanlegri orku er Ísland hluti af alþjóðlegu kerfi. Áhætta tengist því ekki síst: Aðfangakeðjum Fjármagnsflæði Stafrænum innviðum Alþjóðlegri óvissu Á sama tíma stefnir Ísland að kolefnishlutleysi fyrir 2040. Það kallar á frekari rafvæðingu, nýsköpun og samspil loftslagsmála og náttúruverndar. Þessi tvíþætta áskorun, að hraða orkuskiptum og verja náttúru, verður lykilverkefni næstu ára. Mynd úr skýrslunni: Vöktun orkumála í heiminum - staðan 2026. Um skýrsluna Skýrslan byggir á mati rúmlega 2.750 leiðtoga í orkumálum frá meira en 110 löndum. World Energy Council var stofnað árið 1923 er eitt elsta sjálfstæða og óháða alþjóðasamfélag leiðtoga og sérfræðinga á sviði orkumála. Ísland er aðili að ráðinu og Umhverfis- og orkustofnun er tengiliður þess hér á landi. Verkefnið á Íslandi var unnið undir forystu Umhverfis- og orkustofnunar í samstarfi við Landsvirkjun og Samorku.
13. maí 2026
Samstarf um framkvæmd umhverfislöggjafar – Stjórn IMPEL í heimsókn
Stjórn IMPEL (European Union Network for the Implementation and Enforcement of Environmental Law) heimsótti Ísland dagana 5. og 6. maí 2026 og átti fundi með stjórnvöldum og stofnunum sem annast stjórnsýslu og framkvæmd umhverfismála á Íslandi. Umhverfis- og orkustofnun fer með hlutverk landsfulltrúa Íslands innan IMPEL og skipulagði heimsóknina í samstarfi við þátttakendur innan netsins. IMPEL er rótgróið samstarfsnet umhverfisyfirvalda í Evrópu og hefur starfað frá árinu 1992. Markmið IMPEL er að efla framkvæmd og eftirfylgni umhverfislöggjafar með því að miðla reynslu, þróa verkfæri og auka samstarf milli eftirlits- og leyfisveitandi stjórnvalda í Evrópu. Á fundunum var farið yfir skipulag og framkvæmd umhverfiseftirlits á Íslandi, áskoranir tengdar innleiðingu EES-regluverks og kynningar á verkefnum og sérfræðihópum IMPEL. Einnig var rætt um möguleika á aukinni þátttöku íslenskra aðila í verkefnum IMPEL og hvernig starfið getur stutt við þróun framkvæmdar og eftirlits á Íslandi. Sérstök áhersla var lögð á umræður um: Úrgangsmál Mengunarvarnir og iðnaðareftirlit Haf- og vatnamál Náttúrvernd Umhverfisglæpi Áhættumiðað eftirlit Nýjar stafrænar lausnir Á fundunum var góð þátttaka lykilstofnana í framkvæmd umhverfislöggjafar, sem skapaði lifandi umræður og skýran vilja til að efla samstarf og auka skilvirkni í stjórnsýslunni. Ísland hefur verið virkur þátttakandi í IMPEL frá 2010, þar sem að Umhverfisstofnun var upphaflega meðlimur og svo Umhverfis- og orkustofnun.  IMPEL er mikilvægt samstarfsnet sem hefur styrkt íslensk stjórnvöld með því að efla samræmda, skilvirka og faglega framkvæmd umhverfislöggjafar í gegnum þekkingarmiðlun og samstarf á evrópskum vettvangi.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800