Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Samherja Ísland ehf., kt. 440400-4340, til áframhaldandi reksturs heitloftsþurrkunar fiskafurða að Austurhlíðarvegi 2, Laugum í Reykjadal.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.
Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til kl. 12:00 þann 8. október 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS-7466.





